Valsblaðið - 01.05.2001, Page 65
Framtíðarfólk
i ftv '! iP-Sf. -v vmmm 'i J f a’K V i
1LmAc'
Þessir Valsslrákar æfðu með landsliðinu U-86. Standandi frá vinstri: Indriði Thoroddsen, Bjarni M. Baldursson, Þorsteinn Ásgeirs-
son, Alexander Dungal, Sveinn P. Einarsson. Fyrir framan þá eru Magnús B. Guðmundsson (t.v.) og Steingrímur Gauti Ingólfsson.
Elstu körfuknattleiksunnendur í Val
minnast þess ekki að áður hafi 13 leik-
menn félagsins æft með landsliðum Is-
lands í körfubolta. Árið 2001 hlutu 13
leikmenn þann heiður að komast í úr-
tökuhóp í alls þremur landsliðum. Gústaf
Hrafn Gústafsson, Guðmundur Krist-
jánsson og Daníel Karl Kristinsson voru
allir í fyrsta æfmgahópi hjá U-87, lands-
liði drengja sem eru fæddir 1987 eða
fyrr. Það lið á að keppa næstkomandi
haust á Irlandi í undankeppni Evrópu-
keppninnar. Gústaf er sá eini sem komst
1 25 manna landsliðshópinn í sumar en
hann er fæddur 1988 (í desember) og var
því yngsti leikmaðurinn sem æfði með
hðinu. Það er nægur tími til stefnu og
aldrei að vita hvort fleiri Valsarar komist
1 þann hóp um jólin eða næsta sumar.
Valsarar voru með flesta leikmenn
allra liða í fyrsta úrtökuhópi fyrir U-86.
Um er að ræða lið drengja sem eru fædd-
ir 1986 eða fyrr. Alls fóru 8 leikmenn á
einhverjar landsliðsæfingar hjá liðinu.
Alexander Dungal, Steingrímur Gauti
Ingólfsson og Þorsteinn Ásgeirsson æfðu
með landsliðinu í allt sumar. Bjami M.
Baldursson, Indriði Thoroddsen og
Sveinn P. Einarsson æfðu með liðinu í
fyrsta úrtökuhópi en komust ekki áfram.
Magnús B. Guðmundsson var einnig í
fyrsta úrtökuhópi en hann og Gunnar
Marís kontu inn í hópinn síðustu æfínga-
helgina sem haldin var á Akureyri í
ágúst. Strákamir hafa góðan tíma til að
undirbúa sig og bæta til að komast í liðið
því það keppir ekki fyrr en á Norður-
landamótinu jólin 2002 og sumarið 2003
í undankeppni Evrópukeppninnar.
Bæði U-87 og U-86 koma nú saman
um jólin og það verður gaman að fylgj-
ast með hversu margir Valsarar verða
valdir í þá hópa. Ágúst S. Björgvinsson
er aðstoðaþjálfari beggja liða ásamt Ein-
ar Jóhanssyni en Benedikt Guðmunds-
son er aðalþjálfari liðanna. U-84 lið
drengja, sem em fæddir 1984 eða fyrr,
keppti á Evrópumótinu nú í sumar. Engir
Valsarar voru með í för en við áttum tvo
leikmenn sem voru í undirbúningshópn-
um. Það vom þeir Emst Fannar Gíslason
og Atli Antonsson en hann er fæddur
1985. Þeir voru báðir í 25 manna hópi og
æfðu með liðinu í sumar fyrir keppnina.
I ljósi þessa er kristaltært að búið er að
byggja upp mikið af efnilegum strákum í
körfunni hjá Val og verður spennandi að
fylgjast með þeim ásamt öðrum Völsur-
um í framtíðinni.
2001 Valsblaðið
63