Valsblaðið - 01.05.2001, Page 74
Valur í víking til Spánar, 29. júní-13. júlí 2001
hvað útí loftið í áttina að hótelinu og
keyrði svo í burtu. Þá tók við tveggja
tíma leit að hótelinu og vorum við fegnir
að komast upp í rúm um fimmleytið að
morgni.
Eftir þokkalegan nætursvefn vöknuð-
ll.flokkur Vals á Lloret de Mar mótinu á Costa Brava ströndinni á Spáni. Efri röðfrá
vinstri: Sœvaldur Bjarnason þjálfari, Stefán P. Kristjánsson, Stefán H. Sigfússon, Hlyn-
ur Örn Kjartansson, Ernst Fannar Gíslason, Magnús Guðmundsson aðstoðaþjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Birgir Már Arnórsson, Baldur Helgason, Valur Sigurðarson,
Hrafnkell Már Stefánsson, Friðrik Lárusson.
Eftir vel heppnaða ferð til Svíþjóðar á
síðasta ári var gríðarlegur hugur í strák-
unum að endurtaka leikinn. Strax upp úr
áramótum var farið að leita að móti í
samstarfi við IT-ferðir og var ákveðið að
fara á Eurobasket sem var haldið í litlum
strandbæ, Lloret de Mar, staðsettur urn
100 km frá Barcelona. Hafist var handa
við fjáraflanir og var „bón og þvotta-
helgin mikla“ viðamest. Piltamir þvoðu
og bónuðu fjöldann allan af bflum í frá-
bærri aðstöðu Hópbfla í Hafnarfirði.
Einnig nutum við góðs stuðnings Húsa-
smiðjunnar og Bols og kunnum við þeim
bestu þakkir fyrir. Undirbúningur ferðar-
innar gekk vel og spennan magnaðist eft-
ir því sem brottfarardagurinn nálgaðist.
Þann 29. júní rann stóri dagurinn upp.
Ekki gekk áfallalaust að komast úr landi
því vegna verkfalls flugvirkja í Frakk-
landi, seinkaði fluginu um 4 tíma. Við
komust loks á áfangastað kl. 3 um nótt-
ina. A aðaltorgi bæjarins var okkur hent
út úr rútunni og bílstjórinn pataði eitt-
um við í 30°C hita og skoðuðum aðstæð-
ur á keppnisstað. Riðlakeppni mótsins
stóð yfir í fjóra daga. Fyrsti leikur okkar
var við spænska liðið Marcea og sigruðu
Valsmenn með yfirburðum. Til gamans
má geta að við spiluðum alla okkar leiki
í riðlakeppninni í gamalli hjólaskautahöll
með steinflísum á gólftnu og fugla fljúg-
andi í rjáfrum. Næsti leikur var svo gegn
erkifjendum okkar, Svíunum (frá Upp-
sölum) og höfðu þeir betur í hörkuleik,
83-79 og réðust úrslit á lokasekúndun-
um. Þriðji og síðasti leikur okkar í riðla-
keppnni var gegn ítalska liðinu Oleggio,
þar sem „mafíósar" (4 feitir kallat' með
sólgleraugu) sátu í stúkunni og pískruðu
og bentu á okkar leikmenn í hvert sinn
sem þeir skoruðu. Eftir auðveldan sigur
voru Valsmenn óvenju fljótir út og fóru
beint upp á hótel! Á milli leikdaga var
fjölmargt gert til skemmtunar; búðarráp,
strandlíf, go-cart og ferð í stærsta vatns-
leikjagarð Evrópu. Að lokinni riðla-
keppninni, þar sem við lentum í 2. sæti,
tóku undanúrslitin við. Þar var fyrsti
leikur Valsmanna gegn geysisterku ung-
versku liði sem heitir Atomerömu og er
skemmst frá því að segja að þeir vorum
mun líkamlega sterkari og stærri en við
og unnu nokkuð auðveldan sigur. (Þess
má geta að þetta lið stóð svo uppi sem
sigurvegarar mótsins.) Baráttan um 3ja
sætið var því staðreynd þar sem Valsarar
Hressir Valsarar á hótelherberginu að jafna sig eftir erfiðan dag. Frá vinstri: Sœvaldur
Bjarnason, Valur Sigurðarson, Hlynur Kjartansson og Magnús Guðmundsson.
Pískrandi mafíósar!
72
Valsblaðið 2001