Valsblaðið - 01.05.2001, Blaðsíða 90
Hvergi
slegio
Kylfingur Valsmanna 2001
slöku við!
Hið árlega golfmót Vals fór fram í 11.
sinn á velli Oddfellowa í Hafnarfirði síð-
ustu vikuna í júní. Hátt í 60 Valsmenn
tóku þátt í mótinu og sáust margar léttar,
fjölbreyttar og forvitnilegar sveiflur.
Nánast engin vindhögg voru slegin enda
Valsmenn rómaðir kylfmgar eins og al-
þjóð veit! Garðar Kjartansson hefur átt
veg og vanda að þessu móti frá upphafi
og keppt er um farandbikar, stærsta sinn-
Fjölmargir Valsmenn slógu þann hvíta á Valsmótinu í sumar. Mörg kunnugleg keppn-
isandlit eru í röðum kyljinga en þau mœttu vera fleiri á nœsta ári.
Guðmundur Hansson tekur við risabik-
arnum sem Golfari Valsmanna 2001.
Garðar Kjartansson (t.v.) og Halldór
Einarsson skemmta sér konunglega.
ar tegundar á íslandi. Garðar gaf bikar-
inn til minningar um frænda sinn Jóhann
Sebastian Kjartansson sem dó 12 ára
gamall úr krabbameini. Jóhann bjó ætíð í
Frakklandi en faðir hans er Einar Kjart-
ansson, bróðir Garðars.
Sumarið 2001 bar Guðmundur Hans-
son (Guðmundssonar) sigur úr býtum,
Gunnar Kristjánsson „stórveitingamað-
ur“ varð 2. sæti, Jón Þór Andrésson, fyrr-
um knattspymukappi í 3. sæti og Garðar
Kjartansson í því fjórða. Um keppni með
forgjöf var að ræða. Ástæða er til að
hvetja Valsmenn til að taka þessa helgi
frá sumarið 2002 því gífurleg stemmning
er á mótinu og ekki síst að því loknu.
Mótið verður haldið á sama stað að ári,
síðust helgina í júní, og ættu allir Vals-
menn, sem telja sig geta mundað „spað-
ana“ að taka þátt í mótinu.
lil að ná árangri í lífinu og sjá drauma sína rætast
• Vertu vinur foreldra þinna og berðu virðingu fyrir þeim.
Treystum þeim ALLTAF fyrir vandamálum sem kunna að koma
upp.
• Byrjaðu ALDREI að reykja eða nota áfengi og önnur vímuefni.
• Leggu þig ALLTAF fram í því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú
ert þinnar eigin gæfu smiður.
• Heiðarleiki skilar sér margfalt til baka.
• Ekki kenna öðrum um ef þér mistekst. Líttu í eigin barm og
gerðu betur næst.
• Hrósaði öðrum eins oft og kostur er.
• Hlustaðu á hjartað en ekki höfuðið áður en þú tekur mikilvæga
ákvörðun.
• Mesti sigurinn í lífmu er að sigrast á sjálfum sér - takast á við
sína veikleika.
Stefndu ávallt á sólina og
Þannig öðlast þú sjálfstraust til að gera allt sem þig langar til.
• Guð gaf þér tvö eyru og einn munn - til að hlusta meira og tala
minna.
• Gefðu þér tíma fyrir sjálfan þig og upplifðu þögnina. Dragðu
djúpt andann og þá mun vellíðan fara sigurför um líkamann.
Innra með þér eru þau svör sem skipta mestu máli.
• Ekki sætta þig við að 93% af heilanum liggi ónotuð. Þú hefur
hæftleika til að gera ALLT sem þig langar til - ef þú hefur trú á
þér. Leitaðu inn á við.
• Skrifaðu markmið þín á blað og lestu þau reglulega - upphátt.
• Þú getur ALDREI forðast misgjörðir þínar vegna þess að um síð-
ir munt þú standa augliti til auglitis við lífið - eins og þú lifðir
því. Þá er of seint að breyta rétt.
• Spurðu þig reglulega hvað sé mikilvægast í lífinu.
þú gætir krækt í stjörnu! Þorgrímur Þráinsson
88
Valsblaðið 2001