Morgunn - 01.04.1920, Page 24
18
MORGUNN
ing, hvernig það sé, komin verulega á dagskrá, en t. d.
þegar G. P. var að sanna sig, var aðalatriðið þetta, hvort
nokkurt annað líf væri til, en síður hitt, hvernig því væri
háttað. En nú er um að gera að fá sem beztar frásagnir,
athuga þær, bera saman og gagnrýna, og mun þá senni-
lega ýmislegt verða ljóst, sem nú er í þoku hulið og
óvíst. Heíir próf. Iiyslop t. d. mikinn liug á að safna
lýsingum á ástandinu annars heims frá miðlum, sem
ekki eru kunnugir bókmentum spiritismans, né skoðunum
þeim, er þar koma fram, og væntir sér mikils af þeim
rannsóknum.
Til eru auðvitað nú þegar margar og miklar lýsingar
handan yfir, og eru þær að mörgu leyti merkilegar, en
erfitt er að vita að svo komnu máli, hve ábyggilegar þær
eru, því að á margan hátt geta villur slæðst inn, þótt
»andinn« sem frá segir, sé i raun og veru fraroliðinn mað-
ur og vilji segja satt. Um þær helztu lýsingar, sem eg
hefi séð, vil eg segja, eins og sálarrannsóknamaðurinn J.
Arthur Hill, að eitthvað því um líkt er sennilega satt,
þótt surair hneykslist á þeim. En eg hygg, að próf. Hys-
Jop hafi rétt að mæla, er hann segir: »Aðalhöggstaður-
inn á þeim mönnum, sem standa gegn sálarrannsóknun-
um af trúarlegum eða skáldlegum áBtæðum, er sá, að þeir
tiltaka fyrirfram, hvernig sá annar heimur eigi að vera,
sem þeir vilji trúa á. Þeir krefjast einhvers i áttina að
platónsku samsæti til þess að geta verið hamingjusamir,
eða þeir þykjast þurfa þess, þó að nautnir þeirra sé i
raun og veru ’cocktailc1) og vindillc.
En aðalatriðið er heldur eklti það, hvort lýsingarnar
á umhverfinu í öðrum heimi eru meira eða minna réttar
enn sem komið er, eða hvort »sviðunumc er þennan veg
eða hinn fyrir komið, eða hver er tala þeirra. Búast má
við, að mörgu sé ábótavant enn, eins og jáfnan er lengi
fram eftir, þegar um nýjar rannsóknir er að ræða. Aðal-
‘) Einskonar áfengisblanda.