Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Page 28

Morgunn - 01.04.1920, Page 28
22 m o r;g u;n n Samtímis því að þessar spurningar vakna, heyrast aðrar raddir, sem flytja oss þann boðskap, að ýmsum mönnum hafi tekist að komast nær meginuppsprettu þess fljóts, er spratt undan þröskuldi musterisins hinn mikla hvítasunnudag í Jerúsalem, Jieldur en nokkurri kynslóð hafi liepnast síðan daga postulanna. Menn hafi eiginlega fundið aftur uppspretturnar sjálfar. Um leið sé fenginn fullkomnari skilningur á trúarlífl frumkristninnar og þá um leið ráð til að hreinsa burt ýmislegt, sem blandast hefir inn í hinn upphaflega boðskap. Þeim röddum fjölgar óðum og nýr guðmóður hefir gagntekið marga menn, svo að þeir fara borg úr borg, eins og menn í frumkristninni, til að flytja mannkyninu sín gleðitíðindi. Þér vitið, að eg á við hina svo nefndu spiritistísku hreyfingu. Eftir ófrið- inn hefir hún eflst miklu meir en áður. Þar sem hún áður var vart nema [sem lítill lækur, þá er hún nú i sumum löndum orðin sem óvætt fljót. Svo alraeuna at- hygli hefir hún nú vakið, að þúsundum saman hlusta menn á suraa boðbera hennar hvert sinn, er þeir tala. Jafnvel afturhaldssamir mótstöðumenn hennar stara undr- andi á það, sem er að gerast. Fyrir tveim mánuðum kom einn aðalmaður þessarar hreyfingar i Englandi, rit- höfundurinn Sir Arthur Conan Doyle, til Skotlands. Þá flutti hann erindi um málið í báðum stórborgunum Edin- borg og Glasgow. í fjölda enskra blaða er þess getið, að þegar hann flutti boðsk.ap sinn í Glasgow, þá hafi mann- fjöldinn staðið i þjettum röðum — sumir þrjár klukkustundir — úti fyrir dyruin samkomuhússins, til þe38 að komast inn, er opnað yrði. Húsið tók fimm þúsundir, en tvö þúsund stóðu enn fyrir utan, er ekki gátu komist inn. Af því, er hann sagði, er ekkert eftirtektarverðara í mínum augum en saman- burðurinn við postulatimann. Hann benti á, að trúarbrögðin væru ekki neinn frumburðarréttur liðinna alda, heldur sara- eiginleg eign og einkenni allra tíma og' þá ekki sízt vorra tírna. >A umliðnum tímum höfum vér hugsað um of um Júdeu og JerÚ8alem — mælti hann. »Vér höfum gleymt

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.