Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Page 38

Morgunn - 01.04.1920, Page 38
32 MOEGUNN Rupert lifir, og vakið hefir afarmikla eftirtekt og umtal. Henni hefir þrásinnis verið likt við Raymond, hina heims- frægu bók eftir Sir Oliver Lodge, sem á islenzku hefir verið gerð að umtalsefni í ritlingnum »Lífi og dauða*. Auðvitað er efnið í Raymond margfalt meira. Bók prests- ins er ekki nema 176 bls. í fremur litlu broti. Enmörgum finst sannanamagnið enn meira í bók hans. Hér fer á eftir ofurlítið ágrip af því, sem fyrir prest- inn bar og hann hefir skýrt frá. Hann leitaði fyrst til alkunnugs miðils í London, sem heitir Vango. Iiann þóttist þess fullvís, að miðillinn vissi ekkert um sig, og hann lét hann enga vitneskju fá. Fyrsti fundurinn varð með öllu gagnslaus. Vango lýsti nokkurum framliðnum mönnum, sem hann sagði, að stæðu hjá prest- inum. En hann gat engan þeirra nefnt og presturinn kannaðist ekki við neina lýsinguna. Að tilrauninni lok- inni sagði miðillinn við hann: »Þér hafið ef til vill ekk- ert fengið í kvöld. Eg fékk ekkert sjö mánuði. Eg fer ekki fram á annað við yður en að þér komið aftur á morgun*. Presturinn lofaði því ekki. Morgunin eftir réð hann af að fara elclú til Vango framar; honum fanst hann ekki rnega við þeirri tírna- eyðslu. En hann átti erindi til Lundúna. Og á allri leið- inni fanst honum einhver rödd vera að segja við sig: »Farðu aftur í dag«. Prestur kveðst aldrei hafa orðið fyrir jafn-kynlegu áður. Hann gat ekki losnað við þessa rödd, og varð að hlýða henni. Svo að hann fór aftur til Vango. Prestur segir, að miðillinn hafi alt i einu breyzt, eins og hann væri orðinn að einhverjum öðrum manni. Auð- vitað hafði stjórnandinn, sem nefnir sig Sólarblóm (Sun- flower), þá náð valdi á honum. Þessi nýi maður sagði prestinum, að margir framliðnir vinir hans væru þar koranir, til þess að finna hann, og að þeir hefðu valið einn þeirra til þess að sanna honum, hverjir þeir væru. Presturinn bað um nöfnin á þeirn. Stjórnandinn sagð-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.