Morgunn - 01.04.1920, Side 54
48
MORGUNN
Trú 8Ú er horfln. — Annar ríkir andi,
öinurleg þoka hyílir yfir landi;
skilur þó fár, hver voðafeikn og vandi
vesælli þjóð af komu hennar standi.
Hvað verður þá er glatast trausta trúin
timans í glaum, — sú fagra himinbrúin?
Mun þá ei dáð og dygð úr landi flúin,
drengskaparöld til fulls á burtu snúin?
Engu skal kvíða. — Alda ný er risin,
endurreist, lireinsuð, fornu trúarblysin,
styrkt munu’ og fáguð virkin forn og visin,
virkin, sem stöðva sjálfbyrginga-þysinn.
Lúðurinn gellur! Fagrir heyrast hljómar,
hverfa og þagna tímans villirómar,
birtast í nýju ljósi, skært sem ljómar,
liðinna alda tákn og helgidómar.
H. S. B.
„PErsDnu5kifti“
„Sálarfræðinni hrið fer fram“.
Á. H. Bjarnason.
í seiuasta hefti »Iðunnar« er fyrirlestur eftir prófessor
Ágúst H. Bjarnason um bók eftir lækni í Vesturheimi,
dr. Morton Prince að nafni. Bókin heitir: Tlie Dissoci-
ation af a Personality og fjallar um stúlku eina, er höf.
bókarinnar nefnir Miss Chr. L. Beauchamp. Hjá henni
varð vart við hin svo nefndu persónuskifti. Bókarheitið
þýðir Á. B.: Upplausn persónu einnar. Það er ranglega