Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Page 64

Morgunn - 01.04.1920, Page 64
58 MORGUNN atriði, sem eg hefi minst á i frásögninni um tilraunir Wynns. Ekki er það samt neitt dularfult fyrirbrigði, sem fyrir hann kom — heldur sú staðhæfing hans, að ekki sé til neinn sneflll af sönnun fyrir þvi, að þau fyrirbrigði, sem spiritistar hyggja að stafi frá öðrum heimi, séu sprott- in frá jarðneskum mönnum eingöngu. Sumir menn virð- ast halda, að slíkar skýringar séu miklu »vísindalegri« en skýringar spíritistanna. Mér er óhætt að fullyrða, að það er ekkert annað en hugarburður. Eg get ekki að því gert, að mér finst það broslegt. hvað sumir menn hampa spek- ingslega hinum og öðrum skýringum gegn spíritismanum — eins og t. d. þegar þeir segja af töluverðu mikillæti, að þetta og þetta sé ekkert annað en fjarhrif (telepatía). 'Nú segir einn þeirra manna, sem allra-mesta þekking hefir bæði á fjarhrifa-fyrirbrigðum og á spíritismanum, prófessor Hyslop, að samband við framliðna menn sé margfalt betur sannað en fjarhrifin. Það er eitthvað undarlegt, ef það væri »visindalegra« að skýra nokkurt fyrlrbrigði tilverunnar með því, sem er lakara sannað en með hinu, sem er betur sann- að. Auðvitað tekur hann samt gilda kenninguna um að fjarhril' séu til — því að hann álítur að fyr sé nú mál sannað en að það hafi jafn-miklar sannanir sín megin eins og sambandið við framliðna, menn hefir. En þó að fjarhrifakenningin sé tekin gild, þá verða allir raenn með viti að kanuast við það, að við vitum alls ekkert um það, hvernig fjarhrifin gerast. Hvernig berast áhrifin úr einum hug í annan aðra leið en leið skiln- ingarvitanna? Berast þau beint, t. d. eftir einhverjum öldum, sem einn hugurinn lirindir at stað og annar hugur grípur, eins og sumir halda? Aðrir eru því mótfallnir. Sumir halda, að fjarhrifin gerist með milliliðum — að það sóu verur úr öðrum heimi, sem flytji hugsanirnar og tilfinningarnar milli manna — með öðrum orðum, að f jarhrifin sjálf sóu spiritistisk fyrirbrigði. Við vitum ekki, nema það kurmi að vera rétt. Við vitum ekkert um það. Svo lítið vitum við, að jafnvel það vopnið, sem mest hefir verið beitt gegn spíritismanum, fjar-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.