Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Side 71

Morgunn - 01.04.1920, Side 71
MORGUNN 65 af fólkinu standa i þéttum hóp úti á sléttunni milli húss kirkju. Eg spyr konu. sem þar stóð, hverju þetta sæti, hvers vegna, fólkið gangi ekki beint í kirkju. Hún svar- ar og segir: »Það er verið að taka gröfina*. Eg geng með henni að mannþyrpingunni og spyr, hvers gröf sé verið að taka; »það er gröf konanna hans síra Jóns«, svaraði konan. »Nú! — segi eg — og þær eru þó jarð- aðar á Skeggjastöðum; — þetta er þó undarlegt«. Þá segir hún: »Það er nú verið að taka. þá þriðju«. Rétt i þessu heyri eg, að síra Jón segir: »Takið þið gröfina þarna hjá þessum gröfum«; hann beudir um leið með hægri hendinni á grafirnar — þá sá eg að þarna voru grafir — og bætir við: »Nú er hægri hönd mín orðin máttlaus«. Þá vaknaði eg. Síra Jón fluttist að Sauðanesi vorið 1906; þar dó síð- .asta kona hans um sumarið. DI. ITlaðurinn, sem uar að biðja guð miskunnar. Nóttina fyrir 20. des. 1909 dreymdi mig, aðegþóttist ganga út í kirkjuna. hér á Möðruvöllum, og ætlaði inn i kórinn. Stúlka af heimilinu var með mér. Þegar við kornum inn á kirlcjugólfið, só eg mann standa inni á gráðupallinum, hallast fram á altarið og byrgja fyrir and- lit sér með höndunum. Hann er að taln, og svo hátt, að eg heyri glögt fremst á kirkjugólíið að hann er að biðja guð misltunnar og fyrirgefningar á syndum sínum. — Eftir að við höfðum staldrað þarna við örlítið, segir stúlkan, sem með mér var: Æ, við skulum halda áfram inn i kórinn. En eg þverneitaði því. í þessari svipan snýr maðurinn sór snögglega við, og þegar hann kemur auga á okkur, gengur hann mjög hratt fram hjá okkur og út úr kirkjunni; í því hann snaraðist fram hjá okkur þekti eg hann, hafði séð hann hjá Ola bróður mínum á Hjalt- eyri; eg flýti mer út til að vita, hvert hann mundi eigin- 5

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.