Morgunn


Morgunn - 01.04.1920, Page 81

Morgunn - 01.04.1920, Page 81
MOEGUNK 75 Eg er sannfærður um, að fjöldi fólks mundi taka þeim með fögnuði, einkum þar sem, nú orðið, vantar hentugai' húslestrarbækur, sem samsvara kröfum timans — sam- eina þá tvo mikla kosti að vera kristilegar, en þó lausar við kreddur bókstafsins og erfikenningantia. Það hvorttveggja eru prédikanir prófessors Haralds Níelssonar i ríkulegum mæli«. ýmislEgt utan úr hEÍmi. Conan Doylb. — Systir kirkjuhöfðingjans. — Eannsóknarnefnd ERKIBISKUPSIN8. — AlESHERJARNEFND. — HARALDUR NÍELSSON. Sir A. Conan Doyle læknir, skáldsagnahöfundurinn lieimsfrægi, er mestur postuli spíritismans í heiminum um þessar mundir. Það hefir verið eftir honum haft, að hann telji sig hafa öðlast lýðhylli sína til þess að honum skyldi gefast því betra færi á að koma þvi málefni til eyrna al- mennings, sem hann telur mikilvægast í heimi. Og víst er um það, að hann notar það færi. Hann fer borg úr borg til þess að flytja erindi um sambandið við annan heim og þann mikilvæga sannleika, sem hannn telur það samband hafa leitt i ljóa. Ávalt eru honum útvegaðir stærstu salirnir, sem til eru í borgunum, en venjulega verða margir frá að hverfa, sumstaðar mannfjöldi, sem skiftir þúaundum, ftn þess að geta komist inn, Eina af þessum samkomum sínum hélt hann i borg- inni Leicester á sarna tíina, sem enska biskupakirkjan var að heyja þar þing. Þá sagði hann eftirfarandi sögu: Tveir vinir hans, prestur að nafni Crewe og lögmað-

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.