Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 28
FORSÍÐUGREIN TVÍKEPPNI í VIÐSKIPTALÍFINU
Umbúðamiðstöðin og Kassagerðin Umbúðamiðstöðin og Kassa-
gerðin, sem hafa verið keppinautar um árabil í prentun á pappa-
kassa, öskjur og umbúðir, eða pappa almennt, sameinuðust síðasta
haust í eitt fyrirtætó. Nýja fyrirtætóð hefur fengið naJhið NPS Um-
búðalausnir og er það eina á sínu sviði hérlendis en hins vegar í mik-
illi samkeppni við erlend fyrirtætó.
VÍS, Sjóvá-Almennar og Tryggingamiðstöðin Á trygginga-
markaðnum eru þrjú tryggingafélög afgerandi stærst, VIS,
Sjóvá-Almennar og Tryggingamiðstöðin, og er forysta þeirra
mikil. Þó má nefna fleiri félög á markaðnum, eins og Islenska
endurtryggingu og líftryggingafélögin Sameinaða líftrygg-
ingafélagið, Líftryggingafélag íslands og Alþjóða líftrygginga-
félagið. Helsta breytingin á líftryggingamarkaðnum er sú að
þar hafa bankar komið meira við sögu en áður. Stóra bomban
féll auðvitað snemma árs 1997 þegar Landsbankinn keypti
helminginn í VÍS og Líftryggingafélagi Islands, Lífís. Ári síðar
svöruðu Sjóvá-Almennar og Tryggingamiðstöðin fyrir sig
með því að selja Islandsbanka, Búnaðarbanka og fimm lífeyr-
issjóðum 60% í Samlífi, Sameinaða líftryggingafélaginu. Síðasti
stóri samruninn á tryggingamarkaðnum var samruni Trygg-
ingamiðstöðvarinnar og Tryggingar undir lok ársins 1998. En
stærstu breytingarnar á tryggingamarkaðnum urðu undir lok
níunda áratugarins þegar Sjóvá og Almennar tryggingar voru
sameinaðar og Samvinnutryggingar og Brunabótafélag Is-
lands. Þrátt fyrir að FIB, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, hafi
reynt að brjóta markað bílatrygginga upp með þvi að bjóða
tryggingar frá erlendum tryggingafélögum hefur það ekki
haggað stöðu stóru tryggingafélaganna þriggja og frá því í
október sl. hefur FÍB ekki boðið tryggingar erlendra
tryggingafélaga. Um tíma reyndi sænska félagið Skandia fyrir
sér á íslenskum tryggingamarkaði en hvarf síðan á brott eftir
nokkurn taprekstur.
íslandsbanki, Landsbanki og Búnaðarbanki Véruleg samþjöpp-
un banka varð hérlendis þegar Islandsbantó tók til starfa í upp-
hafi ársins 1990 með samruna fjögurra banka, Iðnaðar-, Verslun-
ar-, Alþýðu- og Útvegsbankans. Næsta stóra hreyfingin varð með
stofnun FBA og Nýsköpunarsjóðs atvinnulifsins í byijun ársins
1998 með samruna þriggja stórra fjárfestingarsjóða, Fiskveiða-,
Iðnlána- og Iðnþróunarsjóðs. Eignir þessara sjóða runnu inn í
FBA og Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins Síðan var FBA einka-
væddur og sameinaðist hann íslandsbanka í kjölfarið á miðju síð-
asta ári. í öDu taH um þríkeppni á bankamarkaðnum er ektó hægt
að horfa fram hjá því að hátt í þijátíu sparisjóðir eru starfandi á
landinu og veita bönkunum harða keppni. Kaupþing er orðið allt
annað og stærra Ijármálafyrirtæki en það var fyrir aðeins
nokkrum árum. Loks eiga fyrirtætó á íslandi miklu auðveldara
með að fá lán beint frá erlendum bönkum. Þess má geta að Sam-
keppnisráð hafiiaði sameiningu Landsbankans og Búnaðarbank-
ans skömmu fyrir áramót og taldi að sHkur bantó yrði ráðandi,
sérstaklega á innlánssviðinu, á flármálamarkaðnum.
Ýmsir markaðir Áfram væri hægt að nefna nokkra markaði og at-
vinnugreinar þar sem keppnin stendur fyrst og fremst á miDi tveggja
eða þriggja stórra fyrirtækja þótt nokkur smáfyrirtætó séu Mka í bar-
áttunni. Ymsir hafa bent á að tveir stórir verslanakjarnar verði í eld-
linunni á næstn árum, í Kringlunni og Smáranum, og á miDi þeirra
verði hörð keppni. Á markaði öryggisfyrirtækja eru tvö langstærst
Securitas og Vari, en Öryggismiðstöðin er einnig á þessum markaði.
Á sælgætismarkaðnum er Nói-Síríus langstærsta fyrirtætóð ásamt
Góu. Móna og Freyja veita þeim þó harða samkeppni ásamt irinflytj-
endum á sælgæti. BDaumboðum heíúr heldur fækkað á síðustu tíu
árum en þar er þó engan veginn hægt að tala um tvíkeppni.
Á tölvumarkaðnum eru sex fyrirtæki langstærst, Tæknival,
Opin kerfi, Nýheiji, EJS, Skýrr og ACO, en jalhframt eru þar ótal
hugbúnaðarfyrirtæki. Þess má geta að Opin kerfi eiga meirihlut-
ann í Skýrr og stóran hlut í TæknivaD, ACO og Teymi. Tvær
skoðunarstöðvar bifreiða keppa sín á miDi, þ.e. Frumheiji (áður
gamla BifreiðaefdrDtið) og Aðalskoðun. Þótt endurskoðendur
séu fjölmargir í landinu og stofurnar margar eru þijár þeirra
langstærstar, Deloitte & Touche, KPMG og Pricewaterhou-
seCoopers.
Á markaði húsgagna hefiir orðið verulega samþjöppun á und-
anförnum árum, Ikea, Habitat, Penninn-GKS ogÁ Guðmundsson
eru áberandi stærst Á markaði bóksala hefur orðið veruleg sam-
þjöppun. Þar munar mest um að Penninn á bæði Eymundsson og
Griffil. Samkeppni er þó enn mikil því margar smáar bókaverslanir
eru á höfuðborgarsvæðinu og sömuleiðis hefur sala ritfanga og
bóka færst inn í stórmarkaðina, bækurnar þó fyrst og fremst á aðal-
sölutíma þeirra fyrir jólin. Tvær ferðaskrifstofúr, Ferðaskrifstofa Is-
lands, sem rekur m.a. Úrval-Útsýn og Plúsferðir, og Samvinnu-
ferðir-Landsýn eru langstærstar á markaði ferðaskrifstofa. Og
hefur mörgum þótt sem um tvíkeppni þeirra væri að ræða. Fleiri
ferðaskrifstofur eru þó á markaðnum og hafa látið að sér kveða,
eins og Heimsferðir, Terra-Nova og Ferðaskrifstofa Reykjavíkur.
Þá má minna á að nýlega var ferðaskrifstofan Sól stofiiuð.
Yfir tíll þúsund fyrirtæki Á íslandi eru yfir tíu þúsund fyrirtæki
skráð með starfsemi. Ljóst er að þau skipta ekki mörgum
hundruðum sem eru ráðandi á helstu mörkuðum. Langflest
fyrirtæki á íslandi eru því mjög lítil og stofnuð í kringum ein-
yrkja. En stöldrum við. Oft geta slík fyrirtæki orðið sproti að
einhveiju stærra og meira - sofni risarnir á verðinum. SH
28