Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 36
SVILARNIR í KflLIFORNÍU
Sigurjón á gamla Landsbankahúsið á Seyðisfirði auk þess sem hann
á heilan fjörð, Hellisjjörð, á Austfjörðum.
ýmsar kenningar eru á lofti. Hann er sagður hafa lýst því yfir
að hann hyggist byggja upp ferðaþjónustu á Snæfellsnesi, reisa
þar sögu- og menningarsetur, gera golfvöll og standa hugsan-
lega fyrir hótelstarfsemi, en ekki hefur tekist að fá það staðfest.
Ef rétt reynist er ljóst að ekki verður hugað að því fýrr en í
fyrsta lagi síðla á þessu ári þar sem Siguijón verður afar upp-
tekinn við framleiðslu kvikmyndarinnar K 19: The Widowma-
ker, með Harrison Ford í aðalhlutverki, fram á haust en sú
mynd er einmitt að hluta til tekin í Halifax og Nova Scotia. Það
er þó ljóst að viðskipti hans eru hreint alls ekki út í bláinn,
þvert á móti er þar um ffamtíðarfjárfestingar að ræða. Fast-
eignirnar eru allar frábærlega staðsettar, Sjónvarpshúsið með
sínum viðbótarbyggingarrétti er t.d. á besta stað í bænum.
Byggingin þarfnaðist viðgerðar, sem þegar hefur farið fram, og
má búast við að verðgildi eignarinnar hafi aukist í samræmi við
það. Hvað eyjarnar og jarðirnar varðar þá eru þær í litilli fjar-
lægð frá Reykjavík, þjóðgarður er á næsta leyti og náttúrufeg-
urðin einstök.
Siguijón ku sjáifur segja fátt um fýrirætlanir sínar og telja sum-
ir heimildarmenn Fijálsrar verslunar að skýringin sé einfaldlega
sú að hann lifi og hrærist úti í hinum stóra heimi þar sem fast-
eignir og jarðir eru seldar dýru verði, lítil íbúð miðsvæðis í
London kosti Ld. um 80 milljónir króna. Það sé því lítið mál að
kaupa nokkrar jarðir á Islandi. Siguijón sé einfaldlega að safha
jörðum, svipað og aðrir safna málverkum og frímerkjum. 33
Sigurður Efsli Pálmason
athafnamaður:
Gamansemi verður gullmoli
Fasteignafélagið Þyrping hf. var stofnað árið 1991 til að halda
utan um eignir Hofsflölskyldunnar í Kringlunni. Nokkrum
árum síðar, eða árið 1997, varð til Eignarhaldsfélagið
Kringlan, sem var að hluta til í eigu sömu aðila og Þyrping en
einnig í eigu þeirra sem höfðu verið eigendur að Borgarkringl-
unni. Eignarhaldsfélagið Kringlan stóð fyrir byggingu á tengi-
byggingunni milli Kringlunnar upphaflegu og Borgarkringl-
unnar, sem eitt sinn hét. I fyrra runnu svo saman félögin tvö,
Eignarhaldsfélagið Kringlan og Þyrping, í eitt félag undir nafni
Þyrpingar sem á eignir að andvirði um 11 milljarða króna. Velta
fyrirtækisins nemur tæpum 1,5 milljörðum króna. Þyrping er
yfir 75 % í eigu Hofsfjölskyldunnar. Systkinin Sigurður Gísli,
Jón, Lilja og Ingibjörg Pálmabörn eiga um 15 prósent hvert, og
móðir þeirra, Jónína Sigríður Gísladóttir, á svipaðan hlut. Is-
landsbanki-FBA á um 7 prósent og svo eiga um 80 eigendur
verslunarhúsnæðis í Kringlunni afganginn.
Starfsemi Þyrpingar skiptist í tvennt, annars vegar er eignar-
hald, rekstur og kaup á húsnæði sem þegar er í rekstri, eins og
áður hefur verið greint frá. Þegar Þyrping kaupir slíka fasteign
er verið að losa seljandann, í flestum tilfellum fyrirtæki, undan
þvi að eiga fasteignina og bera kostnað af henni. Viðkomandi
seljandi fær þá andvirði fasteignarinnar til að nota í rekstur sinn.
En margir hljóta að spyija sig að því hvernig Þyrping hagnast á
viðskiptunum. Talið er að um örugg og áhættulítil viðskipti sé
að ræða þegar fasteign skiptir um eiganda og tryggt sé að mán-
aðarlegar leigutekjur skili sér í kassann. Lægri ávöxtunarkröfur
eru gerðar í faglegum fasteignarekstri en í áhættusamari
rekstri, áhættan er jú minni. Markmiðið er að reka fasteignirn-
ar á hagkvæmari hátt, með td. reglulegu viðhaldi, en þegar fast-
eignirnar eru í eigu fyrirtækjanna sjálfra.
Á110 þúsund fermetra Þyrping á í dag fasteignir sem eru yfir
110 þúsund fermetrar að flatarmáli, þar af eru um 70 prósent af
Kringlunni. Aðrar stórar fasteignir eru Hótel Esja, Hótel Loftleið-
ir, margar af fasteignunum sem hýsa verslanir Baugs, bæði á höf-
uðborgarsvæðinu og úti á landi, einnig húsnæði Ikea í Holtagörð-
um í Reykjavík, verslunarmiðstöðin í Spöng í Borgarholti, þar
sem um þessar mundir er verið að byggja heilsugæslustöð, þijár
Gullið í Grímsnesinu
Gamansemin með Kerið hefur reynst gullmoli. í dag er verð á landi á þessum slóðum á bullandi
uppleið og munu þremenningarnir verja þar fé og fyrirhöfn í sumar til að bæta umhverfið. Ekki rísa
þar neinar byggingar.
36