Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 46
Fulltrúar nýrra eigenda Securitas en Gilding, Kauþþing og þrír stjórnendur Securitas keyþtu fyrirtœkib á dögunum. Frá vinstrí: Guðmundur
Arason framkvæmdastjóri, Arni Guðmundsson ogPálmar Þórisson, allirfrá Securitas, Þórður Magnússon, stjórnarformaður Gildingar, ogÁr-
mann Þorvaldsson frá Kauþþingi.
var upp í íbúðum og gekk út á að íbúar báru á sér þráðlausan
hnapp til að þrýsta á kæmi eitthvað upp á. Það var svo árið 1998
að Jóhann Oli fjárfesti að einhveiju ráði í Lyfjaverslun íslands,
en Lyfjaverslunin var einkavædd árið 1994, og hefur verið með
yfir 14% hlut í fyrirtækinu.
Áberandi i íslenska útvarpsfélaginu Þrátt fyrir að eiga Secur-
itas og flárfesta í heilsugeiranum hefur engin fjárfesting kom-
ið Jóhanni Ola eins oft í viðskiptafréttir á íslandi og fjárfesting
hans í Islenska útvarpsfélaginu, Stöð 2. Þar var hann um tíma
með allra stærstu hluthöfum og var þar í hópi með Bolla Krist-
inssyni í Sautján. Þar gerðu þeir fræga hallarbyltingu í apríl
1992 og mynduðu sama ár nýjan meirihluta með Áramóta-
hópnum sáluga sem í voru fýrirtæki eins og Hekla, Yífilfell,
Hagkaup og fleiri. Þessi meirihluti Jóhanns Óla og fleiri varð
síðar að minnihluta sem var keyptur út á vormánuðum árið
1995 á um 1 milljarð króna - sem frægt varð - af Jóni Ólafssyni,
Skífunni, Siguijóni Sighvatssyni og fleirum. Ennfremur skal á
það minnt að Jóhann Óli hefur um árabil verið umboðsaðili
ítalska risafýrirtækisins Pirelli hér á landi, en iýrirtækið fram-
leiðir meðal annars rafmagnskapla af öllum stærðum og gerð-
um, t.d. sæstrengi. Forráðamenn þess komu raunar hingað til
lands íýrir um níu árum og kynntu íslenskum ráðamönnum
sæstreng sem hægt yrði að leggja á milli Islands og Evrópu og
„stinga þannig Islandi í sam-
band við Evrópu". Umræðan
um hugsanlega rafmagnssölu
Islendinga til Evrópu í gegnum
sæstreng var mjög til umræðu
á sínum tíma.
Býr á Englandi Afar lítið hef-
ur farið íýrir Jóhanni Óla í ís-
lensku viðskiptalífi á undan-
förnum árum. Hann hefur búið
erlendis ásamt fjölskyldu sinni frá árinu 1996, bæði á Gíbraltar
og í Englandi, í Kent. I fýrstu munu stundirnar hafa verið fleiri
á Gíbraltar en í seinni tíð hefur hann fýrst og fremst búið í Bret-
landi. Æskuvinur hans, Hannes Guðmundsson, hefur um ára-
bil annast daglegan rekstur Securitas og verið framkvæmda-
stjóri þess fýrirtækis á meðan Jóhann Óli hefur einbeitt sér að
erlendum verkefnum og fiárfestingum.
12milljarðasamningurumSóltún Með sölunni á Securitas á
dögunum hverfur Hannes Guðmundsson frá fýrirtækinu
ásamt Jóhanni Óla. Spurningin er núna hvaða hlutverk Jóhann
Óli ætlar Hannesi í heilsugeiranum sem hann veðjar nú svo á.
Hannes er ekki á leiðinni til útlanda en fullyrt er að hann muni
meðal annars tengjast ijárfestingu Jóhanns Óla í fýrirtækinu
Öldungi, sem er m.a. í eigu íslenskra aðalverktaka, Frumafls
Qóhanns Óla) og fleiri. Öldungur hf. hefur gert 12 milljarða
samning við ríkið um byggingu og rekstur sjúkraheimilisins
Sóltúns sem núna er verið að reisa við samnefnda götu, eða á
svæðinu sem afmarkast af Sóltúni, Nóatúni og Miðtúni.
Þótt Jóhann Óli veðji fyrst og fremst á heilsugeirann á ís-
landi nú þá hófst viðskiptaævintýri hans með stofnun Securitas
vorið 1979 til að framfleyta fjölskyldu sinni með fýrirhuguðu
lögfræðinámi þá um haustið. „Þetta byrjaði á því að ég hafði
fýrir ijögurra manna fjölskyldu
að sjá og var í námi. Þegar fram-
haldsnám blasti við ákvað ég að
stofna lítið öryggisgæslufyrir-
tæki til að fá sumarvinnu og
tekjur með náminu," sagði Jó-
hann Óli í yfirgripsmiklu við-
tali við Frjálsa verslun vorið
1992.
Framhaldið þekkja allir.
Ekkert varð af lögfræðináminu
en Securitas skaut rótum. SQ
Hannes Guðmundsson, fram-
Íkvæmdastjóri Securitastil margra
ára, ernúna hætturhjá Securitasen
m..n áfram vinna iTieð Jóhanni Ola.
46