Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 75
kerfi sem verið hefur. Kannski er það svo að
einhveijir vilji hreint ekki sterkt Alþýðusam-
band, að minnsta kosti er niðurstaðan sú að
nær engu hefur verið breytt."
Hvað með forystuna? Stendur hún sig vel?
„Þar er augljóst að ASI hefur ekki sama styrk-
inn og það hafði íyrir nokkrum árum. Það
hafði miklu sterkari rödd um það leyti sem ég
hóf þar störf fyrir sautján árum. Að hluta tíl
skýrist það af því að þá gerði það heildarkjara-
samninga fyrir alla sína félagsmenn en því
hefur verið hætt nú í samræmi við þróunina
hér og annars staðar og auðvitað er full sátt
um það. Þrátt fyrir allt held ég samt að það
séu margir þættir sem gera að verkum að hin
pólitíska staða ASI er veikari en áður og sú
staða sem sambandið hafði hefur minnkað
mikið. Ég hef horft upp á þær niðurstöður í
könnunum, þegar við spyijum þjóðina hvaða
álit fólk hefur á Alþýðusambandinu, að rúm-
lega helmingur þjóðarinnar hefur nákvæm-
lega enga skoðun á því. Og þetta er á sama
tíma og ákveðinn sljórnmálamaður nær því
að vera bæði vinsælastí og óvinsælasti stjórn-
málamaður landsins. Það er að minnsta kosti
merki um að fólk hafi skoðun á viðkomandi
stjórnmálamanni. En við vitum að 54% þjóðar-
innar hefúr hreint enga skoðun á ASÍ, hvorki
jákvæða né neikvæða. Það er ekki gott fyrir
stærstu samtök launafólks á íslandi að fólk
hafi enga skoðun á þeim.“
Telur þú hægt að snúa þessari þróirn við?
Ari Skúlason er ad hefia störfhjá Aflvaka eftir 17 ára starfhjá ASl: „A síðustu mánuðum
hefég svo séð nýjar hliðar á mönnum og heflœrt að meta þá með öðrum hætti en áður. Þetta
þýðir einnig að lífmitt hefur sorterast uþþ - efsvo má að orði komast - og ég horfi á margt
öðruvísi en éggerði áður.“
„Það er auðvitað mikil þörf á því. Á síðasta þingi var stefnt að
ákveðnum skipulagsbreytingum og sú pólitíska sátt sem tíl stóð
átti að vera fyrsta skrefið í því að snúa þróuninni við. Að mínu
mati tókst hvorugt. Skipulagið er ekki gott og gefur ekki mikla
möguleika og pólitíska samstaðan innan sambandsins gætí ver-
ið miklu betri. ASI hefur ekki átt sterka forystu í mörg ár. Ás-
mundur Stefánsson var sterkur forystumaður sem hafði mikinn
styrk, bæði gagnvart atvinnurekendum og stjórnvöldum og
einnig gagnvart hreyfingunni inn á við. Því miður hafa forystu-
menn ASI ekki borið gæfu tíl þess að hafa þessa stöðu síðustu
árin. Það varð æ meira mitt hlutverk á síðustu árum að vera
helsti talsmaður ASI. Grétar er t.d. róleg manngerð og ekki
Ásmundur - Grétar
„Ásmundur Stefánsson var sterkur forystumaður sem hafði mikinn styrk, bæði gagnvart atvinnu-
rekendum og stjórnvöldum og einnig gagnvart hreyfingunni inn á við.“
„Grátar er róleg manngerð og ekki mikið fyrir að vera í slagsmálum eða orrahríð."
75