Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 77

Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 77
ARI SKÚLASON í YFIRHEYRSLU „Þar er augljóst að ASÍ hefur ekki sama styrkinn og það hafði fyrir nokkrum árum. Það hafði miklu sterkari rödd um það leyti sem ég hóf þar störf.“ mánuðina. Mörgum forystumanna verkalýðshreyfingarmnar þykir ekki tiltökumál að vera ómyrkir í skömmum gagnvart starfsmönnum sínum og hugsa kannski ekki málið til enda, að það séu aðrir sem þurfi að þola ummælin en sá sem þeim er beint að. Á síðustu mánuðum hef ég svo séð nýjar hliðar á mönnum og hef lært að meta þá með öðrum hætti en áður. Þetta þýðir einnig að líf mitt hefur - ef svo má að orði komast - sorterast upp og ég horfi á margt öðruvísi en ég gerði áður. Eg sé þó ekki eftir þessum tíma og er sáttur við að hafa hætt störf- um fýrir verkalýðshreyfinguna á eigin forsendum nú, farið í gott og mjög spennandi starf þar sem mér er treyst og fólk kann að meta það sem ég hef fram að færa.“ Hvert er nýja starfið í hnotskurn? „Eg er að fara til Mvaka sem er atvinnuþróunarfyrirtæki í eigu borgarinnar. Hugmyndin er sú að Mvaki verði einskonar andlit borgarinnar út á við, bæði gagnvart útlöndum og eins inn á við, gagnvart íslensku atvinnulífi og stofnunum borgarinnar. Reykja- vík er í samkeppni við aðrar höfuðborgir en það er staðreynd sem oft vill gleymast hér á landi þar sem svo oft er einblínt á samhengið á milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarinnar. I al- þjóðlegu tilliti skiptir miklu máli hvert atvinnutækifæri, ferða- mannastraumur, ráðstefnur og annað þess háttar fer og ég held, að það að höfuðborgin standi sig, skipti heilmiklu máli. I Dan- mörku er t.d. lögð mikil áhersla á að Kaupmannahöfn standi sig vel og sé samkeppnishæf því þar er skilningur á því að ef höfuð- borgin stendur sig vel, standi aðrir hlutar landsins sig vel líka. Eg hef verið að vinna í atvinnumálum og ýmsum málaflokkum sem þessu tengjast í gegnum árin og hef einnig öðlast mjög mikla reynslu í samskiptum og í því að vinna erlendis. Eg hef verið í for- ystu í ýmsu alþjóðlegu starfi, verið mjög virkur í því, og ég vona að þessi reynsla min nýtist mínum nýju atvinnurekendum vel. Ætlunin er að vinna innan Mvaka í lítilli en samþjappaðri einingu, 4-5 manna, og ég hef alltaf borið gæfu til að geta unnið í hóp. Þarna er mjög margt spennandi á prjónunum. Ein af áherslunum sem á t.d. að skoða er menning sem atvinnustarf- semi. Við höfum þannig séð síðustu árin að menningin hefur blómstrað hér í Reykjavík með einstæðum hætti. Eitt af því er t.d. að einkarekin leikhús virðast ganga vel og ég sé í öllu þessu afskaplega mikla möguleika fyrir Reykjavík sem borg. Bæði til að laða að ferðamenn og svo menningu annars staðar frá. „Small is beautiful“, sagði merkur hagfræðingur eitt sinn og við höfum alla möguleika til að nota okkur það.“ 33 Tíminn er ekki afstæður Tíma- og viðverukerfi Hugar jSýnir viðveru og fjarveru starfsmanna svo sem orlof og veikindi (Reiknar nákvæmlega vinnutíma skv. skilgreindum reiknireglum <nýr yfir öflugri vaktaskráningu og fjölbreyttri skýrslugerð (Getur skilað gögnum til flestra launakerfa (Öflugt tæki til að skrá verkþætti og fylgjast með launakostnaði (Þrautreynt hjá hundruðum fyrirtækja og stofnana H U G U R www.hugur.is “S 540 3000 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.