Frjáls verslun - 01.02.2001, Page 101
AÐ FflNGfl ATHYGLINfl
einn verði að fmna þá leið sem honum
hentar. Sem dæmi um slíkt nefnir hún
Völu Flosadóttur sem tautaði „ég get,
ég get, ég get...“ áður en hún stökk á
Olympíuleikunum.
Við flutning erindis er mikilvægt
að hafa sterkan inngang, kynna sjálf-
an sig strax í upphafi á stuttan en skil-
merkilegan hátt, segja frá umfjöllun-
arefninu og greina frá uppbyggingu
erindisins. Einnig er mikilvægt að
fanga athyglina strax í upphafi og
halda henni fanginni, t.d. með því að
varpa fram vandamáli sem áheyrend-
ur gætu kannast við, taka dæmisögu
eða segja sögu úr eigin lífi.
Vera vinalegur og brosa Hún hvetur
fyrirlesara einnig til að líta í eigin
barm og skoða líkamstjáningu sína.
Til að skapa samkennd með sjálfum
sér og hópnum getur ræðumaðurinn
t.d. talað um hópinn sem heild, frem-
ur en sjálfan sig og áheyrendur. í því
augnamiði getur hann notað orð eins
og „we, all of us, ours“. Augnsam-
bandið skiptir miklu máli og sömu-
leiðis að viðkomandi sé opinn, vina-
legur og brosandi.
„Raddbeitingin er kafli út af fyrir
sig. í einkaþjálfuninni tökum við fyrir
hvernig viðkomandi notar röddina á
ensku, t.d. tónfallið, talhraðann, styrk
raddarinnar og notkun þagna. Það
skiptir miklu máli að óttast ekki þögn-
ina heldur að nýta sér hana. Þegar
fólk er stressað og þarf að halda ræðu
fyrir framan hóp þá óttast það stund-
um að missa athygli áheyrenda ef það
gerir hlé á máli sínu. En það er í raun-
inni þveröfugt sem gerist. Þögnin er
mikilvæg. Athyglin hverfur ef ræðu-
maðurinn stoppar ekki heldur flytur
mál sitt í belg og biðu,“ segir Alda.
Hún hvetur nemendur sína til að
taka erindið alltaf saman í tvær setning-
ar í lokin og flytja sem lokaorð, hafa síð-
an stutta þögn og þakka svo fyrir sig.
Þetta segir hún að sé gífurlega sterkt.
„Það sama gildir þegar maður vill
leggja áherslu á mál sitt, þá getur mað-
ur notað þögn fyrir og eftir,“ segir hún.
Ó, spurningarnar... Margir telja sig komast ágætlega frá
ræðuflutningi á ensku en óttast spurningar í lokin, að fá
kannski óvæntar spurningar, sem erfitt er að svara, fá óvin-
samlega spurningu frá óvinveittum spyrjanda, gagnrýni eða
óvægna spurningu og að segja tóma vitleysu í svari sínu.
Alda kveðst undirbúa nemendur sína sérstaklega fyrir
spurningarnar. „Það tekur tíma að tileinka sér þetta en það
er hægt að kenna fólki að taka
spurningum og svara þeim.
Fyrsta skrefið er auðvitað að
vera meðvitaður og geta t.d.
greint hvers eðlis spurningin er
og að læra svör eða athuga-
semdir sem eiga við í hvert
sinn,“ segir hún og kveðst hafa
heillast af ræðutækni á ensku
„vegna þess að tæknin er í raun
og veru mjög einföld en getur
skipt sköpum ef maður tileinkar
sér hana,“ segir Alda.
IMokkur ráð
við undirbúninginn
1 Hafa skýrt markmið
með erindinu.
2 Þekkja áheyrendur
og vita hver samsetningin er,
t.d. aldur, menntun,
menningarheimur.
3 Hafa skýra uppbyggingu.
Taka fyrir 3-4 lykilatriði.
4 Hafa skýrar glærur
með vönduðum texta.
Myndræn hönnun er mikilvæg.
S Andlegur undirbúningur.
IMokkur ráð
við flutninginn
1 Hafa sterkan inngang
með skýrri kynningu á
sjálfum sér og erindinu.
2 Fanga athyglina strax,
t.d. með dæmisögu.
3 Líkamstjáningin.
4 Samkennd meðal áheyrenda.
Nota tungumálið, augnsamband
og fas til að ná til áheyrenda.
5 Raddbeiting;
Nýta sér þagnir, raddstyrk o.s.frv.
G Lokaorð.
Taka kjarna málsins saman
í tveimur setningum í lokin.
- Hvernig hom það annars til að
bú byrjaðir að henna þetta?
„Eg starfaði sem blaðamaður,
bæði við textagerð og þýðingar.
Fyrir tveimur til þremur árum
fór ég að fá fleiri erindi til þýð-
ingar og oft fannst mér þau ekki
nógu vel fallin til flutnings,
bæði varðandi uppbyggingu og
málfar. I raun var fólk í mörgum
tilfellum aðeins að flytja skýrsl-
ur. A þessum tíma kenndi ég
ensku við Viðskipta- og tölvu-
skólann. Fólk í viðskiptalífinu
vissi af mér sem kennara þar og
kom til mín og það mig um
hjálp við að undirbúa sig fyrir
erindi og fyrirlestra. Tækni af
þessu tagi er viðurkennd er-
lendis og þar starfa fyrirtæki
við að kenna hana. Mér fannst
slíkt fyrirtæki vanta hér heima
svo að ég fór til Bretlands í
sumar sem leið og fékk löggild-
ingu þannig að ég hef hlotið
þjálfun í þessu,“ svarar hún.
Alda á eina dóttur, Aldísi
Hamilton, sem er 9 ára. Hún er
í sambúð með Erlingi Páli Ingv-
arssyni, myndlistarmanni og
hönnuði hjá Iceland Review, og
á hann þrjú þörn. Ahugamálin?
Alda hleypur annan hvern dag
og fylgist vel með fréttum inn-
anlands og utan, hún hefur
einnig áhuga á kvikmyndum og
bókum auk þess sem fyrirtækið
tekur mestan tíma.SH
101