Morgunn - 01.06.1987, Page 5
Ritstjóraspjall
Meginefni þessa rits Morguns er sjónarhorn vísindamanna
sem rannsaka og skoða „yfirskilvitlega" þætti mannsins og nátt-
úrunnar eins og svo hefur verið kallað. Fyrir þá sem litla hug-
mynd hafa haft um að vísindin yfirleitt rannsaki þessi svið er
þetta hefti ágæt yfirsýn. Fyrir þá sem meira vita er þetta að
sumu leyti endurtekning, sem þá er líka nauðsynleg því öll
þekking byggir á reynslu og reynsla er endurtekning.
Við lestur sumra þessarra greina furðar maður sig á því aftur
og aftur hversu litla athygli þessi mál hljóta hjá almenningi og
þorra vísindamanna í heiminum ennþá daginn í dag. Ef við
skiljum að „sannanirnar og sannfæringuna“ um líf eftir dauð-
ann og staðreyndirnar um hina ýmsu hæfileika manna, sem m.
a. eru:
- Sjá atburði fram og aftur í tímann
- Sjá og skynja hluti og atburði úrfjarlœgð samtímis og þeir
gerast
- Lesa hugsanir manna
- Skynja eiginleika hluta og manna
En allir þessir eiginleikar hafa verið rannsakaðir af dulsál-
fræðinni. Og hver er niðurstaðan? Jú, dulsálarfræðin staðfesiir
þessa hæfileika manna, hún getur að vísu ekki sýnt frammá af
hverju sumir menn hafa þessa hæfileika en aðrir ekki, né heldur
hvernig þessir hæfileikar vinna. En það virðist vera þessi skýr-
ingarskortur sem hindrar aðra í að viðurkenna eða öllu heldur
hunsa tilvist þessara hæfileika.
Ymsir aðrir hæfileikar manna eru viðurkenndir af öllum þeg-
ar þeir birtast í háu veldi m. a. listhæfileikar, stærðfræðisnilld
MORGUNN
3