Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 11
angrun í þaki, gert við þakið og það málað. Viðhald á húsnæð-
inu er starf sem aldrei má falla alveg niður.
Utgáfumál:
Fréttabréfið var sent út í apríl 1986 og janúar 1987 með fréttir
af starfi félagsins.
Tímaritið Morgunn kom út tvisvar á árinu. Undir ritstjórn
Sigurbjörns Svavarssonar hefur tímaritið vakið athygli fyrir
fræðandi og nýstárlegt efni um andleg mál.
Lokaorð:
Ef mig misminnir ekki var það á aðalfundi 1978 að ég kom
inn á stjórn Sálarrannsóknafélagsins. Tvö síðastliðin ár hef ég
verið forseti þessa félags. í þessu starfi hef ég haft tækifæri til að
koma á framfæri þeim hugmyndum sem ég tel að félag eins og
þetta ætti að hafa að leiðarl jósi. Mig langar til að draga þessar
hugmyndir saman í örstuttu máli.
í fyrsta lagi: Þetta félag er verkfæri fólks sem er leitendur í
andlegum málum. Þetta er ekki félaga þeirra sem hafa fundið
sannleikann heldur þeirra sem eru að leita sannleikans. í öðru
lagi: í félagi koma menn sér saman um þá leið sem á að fara að
þessu marki, sannleikanum. Og menn koma sér saman um þær
aðferðir sem beita skal til að Ieiða sannleikann í ljós.
í þriðja lagi: Aðferðir og leiðir eru breytilegar. Þær breytast
með ólíkum manngerðum sem veljast til forystu og þær breytast
með tíðarandanum og breyttum ytri aðstæðum. Vissulega eru
venjur og hefðir nauðsynleg kjölfesta en félag má heldur ekki
verða að steini í dögun nýrra tíma.
Af þessu leiðir óhjákvæmilega tvennt. Annarsvegar þurfum
við að þekkja fortíð okkar, meta nútíðina og spá í framtíðina.
Með öðrum orðum, við þurfum að vera vel meðvituð um sögu
félagsins og hugmyndakerfi, stöðu þessa í samtímanum og hlut-
verk í mótun framtíðar.
Hinsvegar þurfum við að kanna vitundina, dýpt hennar og
vídd, mátt hennar og fegurð. Þar er sannleikann um manninn
að finna.
Þetta hefur í sem allra stystu máli verið verkefni og markmið
stjórnarinnar þau tvö ár sem ég hef verið í forsæti.
morgunn
9