Morgunn - 01.06.1987, Qupperneq 22
viðmiðun minninga komin í hring. Ef sálin man réttilega, þá var
hún persóna sem hún man sig vera, en ef minni hennar er
ótrygg þá getur hún ekki verið viss um að hún hafi verið þessi
persóna. Hvernig getur hún gengið úr skugga um hvort
minningin sé rétt? Hana vantar einhverja óháða viðmiðum tii
að reyna minninguna vegna þess að minnið er ekki óskeykult.
Hvar ætli hin óháða viðmiðun að vera? Engin getur komið með
viðmiðun á minningum með athugun á minningu aftur í tímann,
eins og við gátum um áður. Því sýnist að sálin geti aldrei verið
viss um hver hún var. (Það er að hún hafi einu sinni verið sál
sem knúði tiltekinn líkama)
Gerum ráð fyrir að einhver hæfileikaríkur nemi hafi óvenju-
lega orku til að sameina sálir og möguleika á að losa sálirnar við
persónulegar minningar og setja í staðin falskar (rangar)
minningar, og við skulu gera ráð fyrri að þessi ráðabrögð mið-
uðust að því að skapa ágreining á milli mikilhæfra heimsspek-
inga sem uppi voru á mismundandi tímum. Neminn hefur kall-
að upp sál sem við (og hún) vissum ekki hver var og hefur verið
gefin (fals) minning Diotima, einnig hefur hann kallað á aðra
sálir og gefið þeim. líkama með (fals) minningum Heloise, El-
ísabeth Anslcombe, Kuan-Yin og fleirri. Hvorki sálin né við
vitum um ráðabrugg ncmans né hvað hann ætlast fyrir. Ein sálin
myndi segjast vera Diotima, og við gætuni ekkert sagt við því
nema að minna hana á að minni geti verið brigðult. Við gætum
gert eilítið meira fyrir hana. Við gætum með stuðningi við
skráðar heimildir gert samanburð á orðum hennar og hegðan og
bent henni á að hana skorti ýmis einkenni persónuleika sem
Diotima hafði. Það er líklegt að gera ráð fyrir að persónuein-
kenni sé ekki eins auðvelt að breyta eins og minningum og að
neminn hafi aðeins getað sett inn minningar en ekki persónu-
einkennin. Við myndum segja við sálina „Þetta er áreiðanlega
rangt hjá yður, því Diotima var hófsamur maður, en skoðanir
þínar sæmkVæmt persónuleikaprófi Nicholson sýnir að þú ert í
eðli þínu strangur.“
Ef sál hefur persónueinkenni, gætum við hjálpað henni í ein-
stökum tilfellum að útiloka persónur sem hún getur ekki hafa
20
MORGUNN