Morgunn - 01.06.1987, Page 23
verið. En við gætum ekki staðfest tilveru einstakra persóna ef
hún man ekki persónulegar minningar. Því síður gæti hún fund-
ið það út svo lengi sem rangar minningar eru fyrir hendi.
Hvað ef við söfnum öllum sálum saman og hægt væri að
tengja þær allar einhverjum líkama, en að einn líkami stæði út-
undan sem engin gerði kröfu til? Gætum við og hver og ein sál
verið viss um að viðkomandi væri hennar líkami? Nei vegna
þess að neminn hafði með aðferð sinni útilokað öryggi. Allt sem
neminn hafði þurft að gera var að gefa einni sál falska minningu
og ruglingur myndi eiga sér stað. Engin örugg tengsl sálar við
liðna tilveru er möguleg eins og Decartes skildi. Þegar hann
myndaði kenninguna um hina vondu demona (engla)
Það er freistandi að leysa þetta vandamál á sama hátt og Dec-
artes leysti sitt, með því að draga Guð fram í dagsljósið. En
þessi freistingu verður að standast vegna þess að við höfum ekki
borið fram nein þau rök hingað til sem gert hafa ráð fyrir Guði
eða hvaða tegund af Guði er fyrir hendi (þú getur ekki spurt
spurninga um tcgundir Guða því þeir eru ekki gjaldgengir sem
vitni í lausn heimspekilegrar gátu) né er það skýrt að neinn Guð
myndi hjálpa við að taka einstaklingsvitund einstakra huga al-
varlega. Hefðbundnir heimspekingar, virðast hafa gert ráð fyrir
að Guð geti séð inní sálir. Þó þær hafi yfir að ráða það sem eng-
inn annar hefur. Ef Guð er til og Hann geti séð inní sálir og að
þú getir spurt hann spurninga og þú sért fullviss urn að hann
svari ávallt rétt, þá er hægt að svara spurningunni um persónu-
tengsl með öryggi. Þá verður til góð regla. Til að fá svör, spurðu
fullkomna veru.
Fyrir utan að vísa þessu til Guðs, geta sálir án líkama ekki
verið vissar um persónutengsl (Þegar sálir eru ekki tengdar lík-
ama) Framhalds tilveru persónu er ekki hægt að staðfesta vegna
þess að engin gæti mögulega vitnað um að það sé rétt og minnið
þarf þessa staðfestingu eins og það þarf aðferð til að greina milli
sanna og ósanna minninga.
Ef þessi staða skapar sérstök vandamál vegna sálna án lík-
ama, þýðir það að við ættum aldrei að nota þá fráleitu hugmynd
að sál sem er ótengd líkama sé sama sálin sem var áður kennd
morgunn
21