Morgunn - 01.06.1987, Qupperneq 41
molinn hefði verið frá sama stað og sá fyrri og væri það skýring-
in á „mistöku" hennar.
Allar skýrslur Dentons varðandi þessar rannsóknir eru mjög
nákvæmar og er það ekki síst þess vegna sem þær hafa svo mik-
ið gildi. Ég er ekki í neinum vafa um að hægt verður að finna
margt fólk á meðal okkar í dag, sem býr yfir sams konar hæfi-
leikum, og jafn miklum. Nokkra þessara manna er ég þegar
sjálf byrjuð að rannsaka.
Dr. E. D. Babbit, bandarískur læknir og rithöfundur, var
einnig í hópi þeirra vísindamanna 19. aldar, sem áhuga höfu á
hlutskyggni. Samstarfsmaður hans var dr. Maria B. Hayden en
hún var gædd mikilli skyggnigáfu.
Um nokkurra ára skeið hafði hún verið ráðin hjá trygginga-
félagi einu í New York, Globe Insurance Company, vegna hæfi-
leika sinna, til að skyggna rithönd tilvonandi viðskiptavina og
athuga hvort trygging þeirra yrði hagkvæm.
í því sambandi segir dr. Babbitt frá ýmsu athyglisverðu.
Maður nokkur vildi fá sig tryggðan hjá tryggingafélaginu fyrir
tíu þúsund pund og hafði læknir tryggingafélagsins skoðað
manninn og talið hann við bestu heilsu. Þegar Maria Hayden
kvað upp þann úrskurð, el'tir að hafa haldið á blaði með eigin-
handarskrift mannsins, að hann myndi deyja innan átta vikna,
frestaði félagið tryggingu hans um tíma, en maðurinn dó úr
hjartaslagi sjö vikum síðar.
í annað skipti hafði dr. Hayden talið að umsækjandi einn
mundi ráða sjálfum sér bana innan eins árs, en umboðsmaður-
inn áleit þetta heldur ósennilegt og veitti manninum tryggingu.
Það kom seinna á daginn að maðurinn fór að fá þunglyndisköst
og áður en árið var liðið hafði hann stytt sér aldur.
Á fyrri árum ævinnar gerði Babbitt margar tilrauni á skyn-
næmu fólki og skrifaði nákvæmar skýrslur um rannsóknir sínar.
Á efri árum sínum öðlaðist hann sjálfur talsverða skyggnigáfu,
og gat þá lagt á þessar rannsóknir enn raunhæfara mat en áður.
í bók sinni „Lögmál ljóss og lita“ leggur hann grundvöllinn að
ljóslækningum í Evrópu á síðari tímum. í sömu bók ræðir hann
einnig um ýmsa HSP-hæfileika og þar á meðal um hlutskyggni.
morgunn
39