Morgunn - 01.06.1987, Side 60
skynja á þennan hátt. Eftir að ég fór að ræða við það um hæfi-
leika þess, komst ég að raun um að flestir gerðu sér alls ekki
grein fyrir á hvern hátt skynjun þeirra fór fram. Smám saman
fór ég að taka eftir ýmsum sameiginlegum einkennum, sem
alltaf komu í ljós. Ég uppgötvaði að sjálft ferli æðri skynjunar
var skynandanum svo ómeðvitað, að hann hafði aldrei krufið
það til mergjar. Margir hinna skynnæmu, sem unnu með mér,
urðu undrandi þegar þeir uppgötvuðu að ferlið var alltaf hið
saman hjá þeim.
Meðal þess, sem flestum skynnæmum er sameiginlegt, er sér-
stök einbeiting, sem virðist „opna“ skynjun þeirra. Hjá sumum
mönnum, eða sjáendum, sýnist slakna á venjulegri einbeitingu
augnanna um leið og þeir byrja að skynja það sem virðist vera
hærri sveiflutíðni. Þessari slökun augnvöðvanna fylgir alltaf
sýnileg breyting á útliti augnanna. Ein hinna skynnæmu upp-
götvaði sér til undrunar að alltaf þegar hún komst í fjarhrifa-
samband beindist athygli hennar ósjálfrátt að ákveðnum stað,
sem hún sagði að sér fyndist vera í miðju höfðinu. Þegar mér
hafði tekist að fá hana til að athuga þetta nánar, skýrði hún fyrir
mér að sér fyndist athygli sín eins og beinast frá umhverfinu og
safnast í brennidepil, en síðan beindist þessi geisli einbeitingar-
innar til þess manns sem hún var komin í fjarhrifasamband við.
Hún sagðist alltaf vera sér fullkomlega meðvitandi um umhverfi
sitt þ. e. herbergið sem hún sat í, á meðan hún einbeitti sér
áreynslulaust og með lokuð augun að því að ná fjarhrifasam-
bandi. Hún sá sviðið sem hún var í fjarhrifasambandi við eins
og kvikmynd og heyrði mál þess sem hún var í sambandi við
eins og því væri varpað inn í huga hennar.
Tilraunir mínar til að uppgötva á hvern hátt HSP-skynjunin fer
fram, eru enn á frumstigi. Ýmsir athyglisverðir möguleikar hafa
þó þegar komið í ljós í þessu sambandi. Til dæmis uppgötvaði
ég að þeir, sem voru farnir að skilja betur hvernig skynjun
þeirra fór fram, fundu um leið að þeir fengu betra vald á hæfi-
leikum sínum. Þetta er einmitt mjög mikilvægt atriði því að það
veitir þá von að ef til vill sé hægt að þjálfa þessa hæfileika til enn
meira gagns og hjá fleiri mönnum, ekki ósvipað og hægt er t. d.
að þjálfa hæfileika á sviði tónlistar, myndlistar eða stærðfræði.
58
MORGUNN