Morgunn - 01.06.1987, Side 65
sem bestum árangri hefur náö á þessu sviði, sé hinn breski
fræðimaður á sviði sígildra fræða, Gilbert Murray prófessor.
Með dætrum sínum, en þó að öllum jafnaði að einhverjum
gagnrýnendum viðstöddum, gerði hann margar tilraunir á þessu
sviði á árunum 1910 til 1915. í tilraunum þessu var hann sjálfur
viðtakandinn. Murray Iýsir aðferðum sínum á þessa lund: (4)
„Ég fer út úr herberginu og auðvitað svo langt þaðan, að ég
megi ekki nema mál manna. Einhver þeirra, sem eftir er í her-
berginu, venjulega elsta dóttir mín, hugsar sér svipsmynd eða
atvik eða beinir huganum að einhverju, sem henni er hugleikið
og lýsir því fyrir þeim, sem hjá henni eru í herberginu. Eru lýs-
ingar hennar þá skráðar og síðan er ég kallaður inn í herbergið
aftur. Er ég kem inn, tek ég í hönd dóttur minnar og lýsi síðan
í smáatriðumm því, sem hún hefur hugsað, ef mér tekst vel
uPP • • •“
Hér er eitt dæmi um þetta: Agnes Murray (sem þá var send-
andinn) hugsar sér fjarstæðurkennda sviðsmynd, þar sem
Terence, bróðursonur Murrays prófessors, stendur á hæð uppi
af Marneánni með Napóleon keisara sér við hlið og þeir virða
fyrir sér deildir stórskotaliðsins niðri í árdalnum.
Murray prófessor segir, er hann gengur inn í herbergið: „Hér
er um hernaðarmynd að ræða. Mér tekst ekki að greina það til
fullnustu, hvaða menn það eru, sem þarna standa, en þeir eru
að virða fyrir sér stórskotaliðið, sem er fyrir neðan þá . . . Ég
heyri byssukúlur springa. Mér virðist hann Terence vera þarna
ásamt einhverjum öðrum manni; ég held að ég sé ekki kunnug-
ur þeim manni . . . Nei, ég get ekki komið honum fyrir mig.“
Þegar maður hugsar til þess stjarnfræðilega fjölda af hug-
myndum, sem dóttir Murrays gat brugðið upp fyrir hugskots-
sjónum sínum, hlýtur manni að finnast það undrun sæta að
prófessornum skyldi takast að lýsa þeim til fullnustu í 33 tilvik-
um af hundraði og að hluta í 28 tilvikum. í öðrum tilraunaflokki
á árunum 1916 til 1942 tókst Murray prófessor að gefa réttarlýs-
ingar í 36 tilvikum af hverjum hundrað.
Sálfræðingurinn Sigmund Freud varð svo hrifinn af þessum
tilraunum Murrays, að hann sagðist nú vera þess albúinn að láta
af vantrú sinni á hugsanaflutning.
morgunn
63