Morgunn - 01.06.1987, Page 66
Hér má sjá dæmi þess að viðtakendum tókst nokkurn veginn að skrá
réttar myndir við tilraunir í hugsanaflutningi. Það má telja athyglisvert
við myndina af klofnu veifunni, að hana dró viðtakandi upp áður en
myndin af breska fánanum var send af stað (þar mun því öllu heldur
hafa verið um forvitrun en viðtöku hugsanasendinga að ræða) og þar
kemur myndin fram hjá viðtakanda eins og spegilmynd. í staðinn fyr-
ir formbrauð teiknaði viðtakandi mynd af óreglulegu bændabrauði.
Slíkrar ónákvæmni verður gjarna vart á sviði hugsanaflutnings. Ofan-
nefnd dæmi eru tekin frá tilraunum þeim, sem Anthony Cornell stóð að
1964 úr flugvél. Hafði hann með sér tvo „sendendur" og var annar
þeirra undir dáleiðsluáhrifum á meðan á sendingum stóð á fluginu frá
London til Glasgow. Pað þótti sérstætt atvik í sambandi við þessa til-
raun, að þrír „viðtakendur“, einn í Nottingham, annar í London og sá
þriðji í Surrey, skráðu hver um sig niður „höfuðmynd af þýskum
flokksforingja“, sem hreint ekki var með í myndum sendinganna. Sú er
lielst talin skýring á því, að á rr.illi þeirra hafi, að þeim óvörum, farið
hugskeyti í þá átt, utan við og óháð aðaltilrauninni!
Birt með leyfi „Sunday Telegraph".
Bandaríski rithöfundurinn Upton Sinclair fékkst einnig við
tilraunir með hugsanaflutning með góðum árangri. Pessar til-
raunir gerði hann með aðstoð konu sinnar á árinu 1928. Til-
raunirnar fólust í því, að frú Sinclair skyldi veita viðtöku hugs-
unum eiginmanns síns og síðan draga á blað þær myndir, sem
hann einbeitti huga sínum að hverju sinni. Einnig hér tókst oft
furðu vel til: Útlínur teikninga frúarinnar reyndust í mörgum
64
MORGUNN