Morgunn - 01.06.1987, Page 69
drengirnir 19, 20, 23 og 25 rétt svör í röö og vöktu óskipta at-
hygli.
Soal og Bowden gerður sér frá upphafi ljóst, að þeir mættu
ekki Iáta neitt ógert til þess að sannfæra starfsbræður sína s sviði
vísindanna um það, að hér væru engin svik í tafli. Voru því
drengirnir og aðrir viðstaddir vandlega skoðaðir og leitað ná-
kvæmlega á þeim, ekki síst að hugsanlegum leyndum rafsendi-
og viðtækjum. Þegar Soal lýsir þessu, bætir hann við glettnis-
lega: „Þó var ekki leitað í skóm manna!“ Þremur dögum síðar
var kennari við Tækniskólann fenginn til þess að framkvæma
slíka skoðun til frekara öryggis og urðu skórnir þá ekki útund-
an. Drengirnir náðu einnig í það skiptið engu lakari árangri en
áður.
Allt að einu var ekki enn lagður fullur trúnaður á þetta. Tveir
vísindamenn, dr. Eric Dingwall og F. J. M. Stratton prófessor
töldu að drengirnir hlytu að koma boðum á milli sín með litlum
sendi- og viðtækjum. En hvernig mátti svo vera þegar öllum
viðstöddum var í lófa lagið að fylgjast með hverri minnstu
hreyfingu drengjanna? Soal spurði sérfræðing á sviði slíkra
tækja um líkurnar fyrir því að þeir gætu komið slíkum klækjum
við. Sérfræðingurinn leyfði sér að fullyrða að slíkt hlyti að telj-
ast með öllu útilokað. „En því ekki að taka af öll tvímæli um
þetta, með því að láta drengina leika þessar listir annað hvort í
sundskýlum einum saman eða bara allsnakta?“ bætti hann við.
Soal lét ekki segja sér þetta tvisvar. Áður en til næstu tilraun-
ar kom, skruppu þeir Soal og Bowden til næstu borgar til þess
að kaupa sundskýlu hand Ieuan, sem átti ekki slíkan gríp í fór-
um sínum. En svo gerðist þá þetta, segir Soal frá; „Að þegar
Glyn sá nýju, eldrauðu sundskýluna hans Ieuans, þá varð hann
allur miður sín og sagðist ekki geta látiö sjá sig í gömlu og
snjáðu skýlunni sinni við hlið vinar síns í svona skautlegri
skýlu.“
Og þar kom allt fyrir ekki, vísindamennirnir urðu öðru sinni
að leggja leið sína til borgarinnar og kaup samskonar skýlu
handa Glyn. Gat þá fyrst komið til nýrrar tilraunar og var það
10. ágúst á þessu sama ári. Reyndin varð sú, að í fjórum tilraun-
um í sundskýlum einum klæða, tókst drengjunum, að gefa 20,
morgunn
67