Morgunn - 01.06.1987, Qupperneq 76
meðvitundarinnar. Psi er „eðlisdulið", en allt að einu eðlilegt.
Það liggur ljóst fyrir, að það er einnig til hjá dýrum sem „ó-
sjálfráð vitund“ og jafnvel forvitrun -1. d. fyrir náttúruhamfarir
- svo sem fjölmörg dæmi sanna hjá ýmsum dýrategundum.
Psi birtist heilanum sem innblásturslík leiftur frá undirmeð-
vitundinni með þeim hætti, sem menn eiga enn engar skýringar
á. Svo þýðingarmikið sem það hlýtur að reynast skilningi okkar
á mannlegri hegðun, samleiks huga og heilastarfsemi, anda og
efnis, þá hefur vísindunum enn skotist yfir að kanna það til
nokkurrar hlítar allt til þessa. Pví verður heldur ekki neitað, að
enn kjósa ýmsir vísindamenn að leiða þetta alvörumál sem mest
hjá sér.
Leyndardómar Psi-sins hafa þó orðið mörgum leitandi sálum
áleitið úrlausnarefni, allt frá því er rannsóknir færðu mönnum
heim sanninn um að þar væri um annað og meira en einbera
ímyndun að ræða. Leit manna að Iausn þessarar ráðgátu hefur
þó á síðustu árum komist á það stig að eiga sér upphaf að
„kenningum á sviði dulsálarfræði“. Höfuðkenningin er sú, að til
sé það, sem nefnist psi-svið.
Við höfum vissu fyrir því, að efnsissvið getur tileinkað sér ný
gildi langt umfram þá einstaka þætti þess, sem í upphafi kunna
að vera fyrir hendi. Út frá þessum niðurstöðum hefur Gardner
Murphy prófessor ályktað, að undirvitund tveggja eða fleiri
manna kunni að mynda samstarfssvið, sem reynist þess umkom-
ið að yfirstíga allar þær takmarkanir, sem taldar eru tíma og
rúmi eðlislægar samkvæmt fyrri reynslu manna. Aðrir halda því
fram að psi-sviðið búi í varanlegu sambýli við hið efnislega svið
tilverunnar. Með því að tengja þennan sviðskilning þeim niður-
stöðum, sem hann hefur komist að við rannsóknir sínar á sviði
taugalíffræði, hefur dr. Andrija Puharich boðað tilveru þess,
sem hann nefnir „psi-plasma“. (6)
Hver efnisleg smáeind er umlukin sínu eigin sviði. Samkvæmt
kenningu Puharichs er þetta svið umkringt og tengt, fyrir áhrif
þyngdaraflsins, efnislausu psi-plasmasviði. í hvert sinn sem eitt-
hvert lát verður á þyngdarvæginu, mun sú breyting losa um það
afl, sem tengir hin tvö svið og auka sviðsrúm psi-plasmans og
gera það fyrirferðarmeira.
74
MORGUNN