Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 79
óyggjandi sannanakeðju, sem ein getur haggað vanabundnum
viðhorfum vísindanna.
Þetta þarf engan að undra. Mannlegur heili er ógnvekjandi
tálmi á vegi tilrauna á sviði sálrænna rannsókna. Þetta líffæri
hefur þróast á þá lund, að það hefur orðið eðlilegur varnarvegg-
ur gegn öllum viðhorfum, sem - að minnsta kosti hjá tæknilega
hugvæddum menningarhópum - ekki þjóna nánustu þörfum
lífsbaráttunnar. Þar sem innblásinnar andagiftar gætir virðist
hún fremur skjóta upp kollinum þrátt fyrir mannsheilann en
vegna hans.
Það, sem við köllum vísindaskáldskap - science fiction - tek-
ur að vísu hið eðlisdulda (paranormal) upp á arma sína. Rit-
höfundar slíkra bókmennta gæða sögupersónur sínar hugsend-
ingahæfileikum, huglægum líkama- og hlutsendingum, efnisaf-
væðingu og endurvæðingu. En annað veifið benda ýmsir hæ-
verskari aðilar okkur á, að ýmsar greinar vísinda hafi náð þeim
árangri, sem enginn hefði látið sér til hugar koma fyrir manns-
aldri eða svo.
Ástæðulaust er þó að láta hér við það eitt sitja að bíða og
brjóta um það heilann, hvort rannsóknir í tilraunastofun kunna
brátt að leysa ráðgátuna um psi. Til eru aðrar leiðir og aðrir
frumherjar, sem þegar hafa sótt mun lengra inn í dularheima
alnærveru og tímafrelsis mannlegs hugar.
Látum okkur nú sjá, hvort í annálum þeirra kunni ekki að
leynast einhverjir þeir forvitnisfjársjóðir, sem vert væri að
skyggnast í.
Úr bókinni Himinn, Jörð og Hugur manns.
V íkurútgáfan 1979.
morgunn
77