Ný saga - 01.01.1991, Page 9

Ný saga - 01.01.1991, Page 9
ÓSTJÓRNLEG LOSTASEMI KARLA Á FYRRI TÍÐ 1792 og fullyrti að samfarir fælu í sér kúgun kvenna vegna þess að karlar tengdu athöfnina ávallt við þrælkun og yfirráð. Sanifarir væru valdbeiting karla og sýndu afl þeirra og áfergju." Nýverið tók bandaríska kvenréttindakonan Andrea Dworkin í sama streng. Hún segir að samfarir opinberi það vald sem karlar hafa yfir konum. Ekki að þær séu endilega alltaf það sem þjóðfélagið lítur á sem nauðgun, en áreiðanlega nokkuð sem ekki verður komist hjá að viðurkenna sem yfirráð.1' Samkvæmt kristinni hug- myndafræði hefur málum verið þannig háttað frá upphafi vega. Að mati guðfræðinga á 13- öld voru hinar fyrstu samfarir Adams og Evu í Paradís gleðisnauðar, líkastar handa- bandi.16 Eins taldi séra Páll Björnsson í Selárdal um miðja 17. öld að samfarir Adams og Evu í Paradís hefðu farið fram „án nokkurar aldingarðsins saurgunar“ og Adam hefði verið „fullur af heilögum anda“ við verkið. I’að var í samræmi við orð Biblíunnar: „Og þau voru bæði nakin, maðurinn og kona hans, og blygðuðust sín ekki“ (1. Mós. 2, 25) Líklega hefðu kirkjunnar menn helst viljað hafa þetta svona áfram, en syndafalliö spillti fyrir og eftir að hin fyrstu hjón voru rekin á braut úr Paradís þróaðist allt til verri vegar. Syndin kom í heiminn og kynlíf varð af hinu illa. Refsing Evu var að hún skyldi þjást við fæðingu barna og vera undirgelin karli sínum: „með þraut skalt þú börn fæða, og þó hafa löngun til manns þíns, en hann skal drottna yfir þér.“ (1. Mós. 3, 16) Konur áttu að taka því fagnandi sem að höndum bar, líkt og María mey þegar hún tók við syni Guðs. Orö engilsins voru ótvíræð: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur hins hæsta mun yfirskyggja |iig, fyrir því mun og það, sem fæðist, verða kallað heilagt, sonur Guðs.“ María tók þessu þegjandi og hljóðalaust: „Sjá, ég er ambátt Drottins; verði mér eftir oröum þínum.“ (Lúk. 1, 35-38) Evu var refsað fyrir að fara eigin leiðir, en María var hlýðin og farnaðist vel. Hún þráöi það sem henni var skipað.1" Slíkt var hlutskipti kvenna. Þær áttu að vera undirgefnar og sáttar við lífið. Hafa fáir orðað jressa hugsun betur en mexíkóska Nóbel- skáldið Octavio Paz í bókinni Völundarhús einsemdarinnar frá 1950: „Konur eru minna veröar fyrir þá sök að þegar þær gefa sig einhverjum á vald opna þær sig. Þetta er þeim meðfætt og fylgir kynferðinu, því þær leyfa því sem er fyrir utan að þrengja sér inn í einrúm sitt. Það er sár sem aldrei ,/19 grær. Refsing Adams var aftur á móti fólgin í því að hann skyldi neyta brauðs síns í svita síns andlitis og yrkja jörðina með erfiði. Ekki lagði Guð álög á kynhvöt hans og annarra karla berum oröum, en til marks um frumkvæðið sem Adam átti að hafa í þeim efnum má vísa til annarrar setningar í Sköpunarsögunni: I „Þess vegna yfirgefur maður Gefur þaö ekki auga leið aö ævarandi girndarbruni eða gredda hafi veriö rökrétt afleiöing af bölvun Drottins yfir Adam? 7

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.