Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 46

Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 46
þær geymslur. Þar var mikill raki og í þokkabót kom í ljós að það var kominn mölur í talsvert af húsgögnunum. Þarna var músagangur, þannig að þetta voru ekki ákjósanleg skilyrði. Áður en munirnir voru fluttir í nýjar geymslur þurfti að gasa þá í gámum til að drepa allt kvikt á þeim. Það ber talsvert á því við- horfi að allt sem ergamalt sé merkilegt. Getur sií stefna ekki leitt til þess að það er vanrœkt að safna yngri munum? Jú, það hefur verið fram að þessu. Nú er mikið talað um samtímasöfnun hjá safna- mönnum. Það þarf að vera dálítil stúdía á bak við það til að það veröi markvisst. Það þarf aö átta sig vel á samtímanum og þeim tímabilum sem maður er að fást við. Heldurðu aðþið hafið misst af einhverjum dœmigerðum munutn sem allir áttu fyrir 10 árum, en engintt á ttútia? Já, í mörgum tilvikum. Það eru kannski helst venjulegir hlutir eins og td. mjólkurfernur, hlutir sem voru á hverju borði og á hverju heimili. Það er ekki þar með sagt að þeir séu til á söfnum í dag. Það er svo margt sem hefur farið forgörðum, sérstaklega eftir seinna stríð, hlutir sem voru kannski við lýði í stuttan tíma, en hurfu síðan. Þetta var svo venjulegt og hversdagslegt að engum datt í hug að geyma eintök af því. Ettþá telur sem sagt að ekki sé nóg að safna slíkutn vörutn, heldurþurfi að liggja tniklar rannsóknir að baki? Ekki endilega miklar rannsóknir en það þarf að minnsta kosti að átta sig á því hvort viðkomandi sé dæmigert fyrir eitthvað, eða eitthvað sem hefur óvart komið inn, en það síðarnefnda getur líka verið athyglisvert; eitthvað skrýtið sem einhver hefur eignast. En aðaláherslan er á það sem er dæmigert, til þess að geta sett upp sýningar um einhvern ákveðinn þátt í sögunni. Þá höfum við fyrst og fremst not fyrir það sem var einkennandi fyrir heimili eða atvinnustarfsemi eða hvað það er sem tekið er fyrir í viðkomandi sýningu. Eti þurfið þið ekki að sinna þessu miklu tneira nœstu ár en þið hafið gert? Jú, það sem er í gangi núna er fyrst og fremst að koma hlutunum í rétt geymsluskilyrði og tölvuskrá þá, en þegar það er komið þá getum við farið að einbeita okkur að söfnun meira heldur en hefur verið gert hingað til. Ég held einmitt að það sé mjög brýnt að stefna að því fyrr en seinna því að nú eru að verða mikil skipti í eldri hverfunum og það er verið að tæma háuloftin núna. Það er því mikilvægt að fara af stað með þetta sem allra fyrst. Annars er hlutverk Árbæjar- safns í minjavörslu ekki endilega einskorðað við að varðveita alla hluti á staðnum. Ef til dæmis væri um merkilega landa- merkjasteina að ræða, væri miklu nær að þeir væru á sínum upp- haflega stað og safnið fylgdist síðan með þeim og færi jafnvel út í skráningu út í bæjarlífinu; fara til dæmis í prentsmiðjur og skrá prentminjar eða aðrar verksmiðjur og skrá þar hluti sem borgarminjar án þess endi- lega að taka þá í okkar vörslu. Hvemig er því háttað ttieð borgarminjar, eni til einhver lög eða reglugerðir sem kveða á utn sjálfvirka vemdun ef tninjar uþþfylla ákveðin skilyrði, líkt og utn þjóðtninjar? Borgarminjar eru jú líka þjóöminjar. Viö erum að fara út í þetta fyrst núna í sambandi við minjar í borginni og byrjum á prentminjum. Slík verkefni gætu orðið til þess að fólk færi að bera meiri virðingu fyrir þessum gripum sem það á hjá sér, átta sig i meiri mæli á að þetta sé einhvers virði; ekki bara að líta á verðgildi heldur verða meðvitað um að þetta geti verið menningarminjar sem beri að varðveita. Sennilega má segja að söfnin hafi ekki sinnt upplýsingastreymi nægilega vel, þau hafa ekki haft tök á því. Er það viðhorf kannski ríkjandi að það séu helst tiltölulega gatnlir hlutir úr sveit setti eni merkilegir en síðurnýrri hlutir úr þétlbýli? Við höfum rekið okkur á þetta, sérstaklega í sambandi við hernámssýninguna og reyndar einnig fyrir jólasýninguna. Þegar t.d. var auglýst eftir jólaskrauti varð fólk hissa þegar það komst að því að við vorum að sækjast eftir yngri hlutum eins og plastjólatrésseríum og skildi ekkert í af hverju safnið hefði áhuga á slíku skrani. Ég held hins vegar að það sé hlutverk safnanna að koma þeim skilaboðum áleiðis til fólks að við séum einnig á höttunum eftir svona hlutum. Getur veriö að Árbœjarsafn hafi kannski einhvers konar ímynd sveitasafns, aðfólk átti sig ekki á því að safnið hefur ýtnislegl aðgeyma setti tengist þeim lítna setn það var að alast uþþ á mölinni? Nei, ekki finnst mér það neitt sérstaklega. Það hefur nú orðið þannig að það hefur myndast ákveðin verkaskipting milli Árbæjarsafns og Þjóðminjasafns. Almenningur hefur farið meira með fínni hluti, td. gamla útskorna hluti á Þjóðminjasafnið en kemur kannski með þrjátíu ára gamla þvoltabala til okkar; jwottabretti eða dúnka, þ.e. muni sem hafa verið hluti af daglegu lífi. Á þennan hátt hefur kannski ómeðvitað myndast meiri vísir að samtímasafni hjá 44
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.