Ný saga - 01.01.1991, Blaðsíða 63

Ný saga - 01.01.1991, Blaðsíða 63
vaxandi áhugi metnaðargjarnra sagnfræðinga á að ljúka dokt- orsprófi í fræðum sínum, helst í nokkurn veginn beinu framhaldi af öðru háskólanámi. Það er einmitt heillavænlegt að í „framleiðslu“ sagnfræði- rannsókna haldist nokkurt jafnvægi milli ólíkra flokka. Þrengri rannsóknir eiga sinn vettvang í styttri ritgerðum, bæði í tímaritum og safnritum, og ýta námsritgerðir, fyrirlestrar og ráðstefnuhald undir þá framleiðslugrein. Yfirgripsmeiri rannsóknir eru oft tilefnis- bundnar (ævisögur, félaga- og stofnanasögur, héraðs- og bæjarsögur) eða unnar fyrir bókamarkað og lúta þá að meira eða minna leyti kröfum um alþýðlega framsetningu, og er sú framleiðslugrein vissulega bæði holl og nauðsynleg fyrir sagnfræðina. En þó myndi „skuturinn eftir liggja" ef ekki væri jafnframt unnið að rannsókn allvíðtækra efna með háfræðilegu sniði, og þar er einkum doktorsritgerðunum til að dreifa. I þessari grein er athygli vakin á broti af þessari sagnfræði- framleiðslu, þ.e. átta doktors- ritgerðum um íslenska sögu sem fram hafa komið við sænska háskóla á síðastliðnum átta árum. Einkum hefur verið íjölyrt um þann helming ritgerðanna sem fjalla að meira og minna leyti um verka-lýðssögu síðustu 100 ára. En allar átta má hafa til marks um það, hvílík aflstöð sænsku háskólarnir hafa verið íslenskri sagnfræði, með kröfum sínum um víðtækar og strang- fræðilegar rannsóknir sem jafnharðan birtast á prenti. Skipulegt doktorsnám í sögu við Háskóla íslands kemur von- andi ekki í stað framhaldsnáms erlendis, heldurvið hlið þess og með sambærilegum kröfum, þannig að framleiðsla doktors- ritgerða eflist enn, bæði að gæðum og fjölbreytni. TILVÍSANIR 1) Ég get ítrekað þaö sem ég hef áður sagt í ritdómum, aö ég tel mikinn feng aö rannsókn Þorleifs. Hún hefur valdið nokkrum deilum, enda skrifuð út frá mjög eindreginni afstööu til sögupersónanna og athafna þeirra. En kannski má heimfæra upp á Þorleif það sem Gunnar Karlsson segir í ritdómi (Saga 1985, bls. 272) um Harald Gustafsson: „Hlutdrægni höfundar er þannig víða til skemmtunar og skýrleiksauka.“ 2) Og þó þeim mun varhugaveröari sem þýöingin er merkilega óyfirlesin. Þannig er í heimildaskránni (s. 351—364) ekki ein- ungis aragrúi af prentvillum og ósamræmi, heldur talsvert um aö skýringar og athuga- semdir komi óþýddar á íslensku, t.d. „Ódagsett sérprentun úr Alþýöublaöinu (sennilega 1942)“ (s. 358 neðst), því líkast að þýðandinn líti á þær sem eins konar undirtitla! Þetta tengist víst einhverjum tilraunum til aö endurnýta tölvusetningu, og þó koma nýjar prentvillur inn í svona klausur. Nafnaskráin ber þess einnig merki að þar sé notuö tölvusetning íslensku út- gáfunnar, því aö sums staöar (sjá t.d. undir ,,Bernstein“) hefur gleymst að taka út blaösíðutöl sem vísa til hennar. Þessi aðferð hefur þó sína kosti. Henni má víst þakka þaö aö persónan “Helgi Sæmundur” (s. 162; “Helgi Sæm.” í íslenska textanum) fer í nafnaskrána undir síriu rétta nafni (að vísu meö blaðsíðutalinu 161, en meirihluti allra blaðsíðutala er einum of lágur í skránni, sjáanlega vegna þess aö bætt hefur verið viö textann eftir aö hún var gerö). Sem dæmi um yfirlestrarleysi má enn nefna aö þýðingin (s. 321, tilv. 31) fylgir frumtextanum í augljósu brengli þar sem Þór Whitehead eru í sömu andrá eignuð tvö andstæö sjónarmiö. 3) Þar eru auk þess birtar á frummáli orðréttar tilvitnanir sem aðeins eru á íslensku í eldri bókunum, en íslenskir textar hins vegar þýddir á dönsku; til að hafa allt á frummáli þarf aö nota báðar útgáfurnar saman. 4) Það eru ekki síst hinar ríkulegu tölur og töflur um alls konar hluti sem laöa menn aö bók Magnúsar. Mikiö af talnaefni hans er hvergi annars staðar að finna af því að hann tekur ekki aðeins beint upp úr hagskýrslum, heldur vindur hann úr þeim frekari upplýsingar með umreikningum og eyðufyllingum og beitir þar tölfræöikúnstum sem við hefðum flest hver hvorki kunnáttu né áræöi til að fara út í af eigin rammleik. En hér er viðvörunar þörf. Töflur Magnúsar eru eins og þær lærðu útgáfur fílólóganna sem ekki er óhætt að vitna í fyrr en maður er bæði búinn að lesa innganginn og neðanmáls-greinarnar. Ég tek eitt dæmi: Gísli Agúst sýnir í töflu á bls. 139 hvernig vinnuaflið (economically active) á íslandi skiptist á atvinnugreinar 1860— 1930. Þar sé ég m.a. að atvinna við fiskvinnslu (fish processing) hefur minnkaö á árunum 1901 til 1910 úr 3,6% í 3,0% af vinnuaflinu, og þykir mér þaö merkilegt eftir því sem ég þykist vita um sjávarútveg á þeim árum. Heimild Gísla er Magnús Magnússon, bls. 100. Ég þangað; tölurnar eru rétt upp teknar hjá Gísla, en Magnús vísar á skýringar í viöbæti. Ég þangað. Kemur nú í ljós, sem mig raunar rámaði í, að í þessum gömlu manntölum er vinnuaflinu alls ekki skipt á atvinnuvegi, heldur er hvert heimili talið til atvinnuvegar „framfærandans“, þ.e. að jafnaöi húsbóndans, og hefur Magnús orðið að reikna vinnuaflið út úr mann- tölunum með margs kyns brögðum. Einnig kemur í ljós að fiskvinnsla er alls ekki sérstakur flokkur í manntalinu 1901. Magnús býr hann til. Setur í hann þær 800 konur, sem taldar eru „framfærendur“(þ.e. standa fyrir heimili eöa eru einar í heimili) og lifa af sjávarútvegi; svo og 520 karla, sem eru „the group of cottagers". Sem ég ímynda mér að séu þurrabúðarmenn og fer að leita að staðfestingu á því. Fer að efast þegar ég finn á bls. 34 útskýringuna „crofters (þurrabúðarfólk)" En þetta mun vera óviljandi misræmi, því að í töflu á bls. 33 stendur „cottagers“ í því samhengi að það getur ekki annað verið en þurrabúðarmenn. Þá veit ég loksins livað er á bak við töluna 3,6% við árið 1901 hjá Gísla. Það er afskaplega gróf áætlun og engin ástæða til að halda að hún standist neitt nákvæmlega á við fískvinnsluflokkinn 1910 sem er reiknaöur út úr manntalinu á allt annan hátt. Hinar merkilegu upplýsingar um samdrátt vinnuafls í fiskvinnslu eru sem sagt engar upplýsingar heldur bara aukaverkun af hinum sterku tölfræðilegu meðulum Magnúsar, og eru hliðstæð dæmi á hverju strái í bókinni. Svona tölur þjóna að vissu leyti sínum tilgangi. Þær fylla upp í töflur þar sem hæstu tölurnar eru meira og minna marktækar. En við megum ekki leggja merkingu í uppfyllingartölurnar út af fyrir sig, og það er talsverð íþrótt að lesa Magnús án þess aö ruglast í livort sé hvort. 5) Uppbygging og efnistök eru um margt áþekk hjá þeim Uppsaladoktorum, Stefáni og Gísla Ágústi. Samanburðurinn við erlenda reynslu og almennar kenningar skipar áþekkan sess hjá báöum, og nákvæm athugun Gísla á nokkrum völdum kirkjusóknum samsvarar sérrannsókn Stefáns á Norðurlandi. 6) Ekki hefði ég t.d. taliö fyrirfram að rannsókn á þessu efni gæfi tilefni til að vitna í fimm ritgerðir eftir sjálfan mig. 7) Hér get ég trútt um talað eftir að hafa starfað um skeið í dómnefnd yfir 13 umsækjendum um lektorsstarf í sagnfræði við Háskóla íslands. Mörg þeirra eiga að baki glæsilegan rannsóknarferil á undanförnum 5—10 árum. 6l AF BÓKUM En þó myndi „skuturinn “ eftir liggja" ef ekki væri jafnframt unniö aö rannsókn allvíötækra efna meö háfræðilegu sniði, og þar er einkum doktorsritgeröum til að dreifa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Ný saga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.