Ný saga - 01.01.1991, Síða 14

Ný saga - 01.01.1991, Síða 14
af þeim tímabilum, þegar ný viðhorf og ef til vill ný heimsmynd ryður sér til rúms. Ein af ástæðunum fyrir þessu metnaðarfulla mati á sam- tímanum er sú staðreynd, að iðkendur ýmissa fræðigreina standa nú á nýjum mörkum hvað varðar leiðir til að afla nýrrar þekkingar og að hagnýta hana í tæknilegum tilgangi. Hér er ekki lengur um að ræða mörk hins mögulega og ómögulega, heldur hins æski- lega og óæskilega, leyfilega og óleyfilega eða hins rétta og ranga, svo gripið sé til orðaforða siðfræðinnar. Hér er einkum átt við ýmsar greinar líf- og læknisfræði, líftækni og líffæraflutninga. Þróun á þessum sviðum hefur, vakið upp mikinn fjölda nýrra og áður óþekktra álitamála, sem taka verður á með siðfræöilegri greiningu, stefnumörkun og lagasetningu. Endurmat á áður viðurkenndum gildum og viðmiðum hefur þegar hafist og kemur meðal annars fram í breytlum skýringum á mörkum lífs og dauða, sem byggja á nýrri þekkingu á starfsemi mannsheilans og taka tillit til forsendna líffæraflutninga. Sú víðtæka umræða, sem átt hefur sér stað um vísinda- siðfræði á síðustu áratugum, hlýtur að vekja ýmsar áleitnar vangaveltur meðal hug- vísindamanna. í fyrsta lagi hlýtur sú staðreynd, að umræðan hefur að mestu snúist um málefni raun- eða náttúruvísinda, að benda til þess, að þar hafi framfarir verið hraðstígari en á sviði hugvísinda. Þá kann þessi staðreynd einnig að segja mikið til um mat stjórnvalda, fjölmiðlafólks, almennings og jafnvel visindamanna sjálfra á því, hvaða fræðigreinar séu áhugaverðastar og leggi mest af mörkum í baráttu manna fyrir stöðugt aukinni þekkingu og bættum lífsskilyrðum. Þá hefur nokkurrar stöðnunar gætt í það minnsta hér á Iandi, hvað varðar rannsóknarsiðfræði hugvísinda. Meðan þeir, sem fjalla um siðfræðileg álitamál á sviði raunvísinda brjóta heilann um æskilega afstöðu fræði- greina sinna til lífs og dauða, hættir hugvísindamönnum til að láta gamalkunnar spurningar rannsóknarsiðfræðinnar halda fyrir sér vöku. í hópi sögusiðfræðinga glíma menn löngum við það, hversu lengi ýmsar tegundir heimilda jourfi að liggja í þagnargildi. Þá snýst umræðan tíðum um, hversu nærri friðhelgi einstaklingsins sagnfræðileg rannsókn megi ganga. Það eru þó fleiri og brýnni álitamál, sem sögusiðfræðingar þyrftu að láta koma til sinna kasta og hafa beinni áhrif á tilverugrundvöll sagnfræðinnar og vinnubrögð innan hennar sem og á sjálfsmynd sagnfræðinga og verkefnaval þeirra. Er þar með komið að spurningunni um það, hver sé hinn eiginlegi tilgangur sagnfræðilegra rann- sókna. Þessari yfirgripsmiklu spurn- ingu má í raun sníða af- markaðri búning, sem sýnir, hversu beint samband hún hefur við daglegt starf sagn- fræðinga og annarra þeirra, er ástunda líkar greinar. Nú á tímum fer allur kostnaður í sambandi við rannsóknir hraðvaxandi. Þó þetta eigi einkum við um rannsóknir á sviði raunvísinda, er sú tíð löngu að baki, að hug- vísindamenn þurfi fátt eitt annað en frið og fjöður til að stunda fræði sín. Samkeppni um fjármuni þá, sem ætlaðir eru til rannsókna fer því síharðnandi bæði milli fræða- sviða og einstakra rann- sóknarverkefna. Við slíkar aðstæður er ekki óeðlilegt, að iðkendum hinna ýmsu fræða sé gert að færa fram nokkurn rökstuðning fyrir ágæti verka sinna og réttlætingu fyrir því, að til þeirra sé varið fé, sem mögulegt væri að veita til ótölulegs fjölda annarra verkefna. Allir þeir, sem leggja stund á sögulegar rannsóknir hljóta því fyrr eða síðar að svara ágengum spurningum af eftirfarandi tagi: Hvað hafið þið fram að færa í samfélagi fræðanna, er gerir það að verkum að þið getið vænst þess að tillit sé tekið til verkefna ykkar við skiptingu þeirra takmörkuðu fjármuna, sem ætlaðir eru til rannsókna? Hvað réttlætir það, að farið sé fram á fjárveitingar til rannsókna á löngu liðnum atburðum eða horfnum sögulegum aðstæðum, meðan enn vantar mikið á að full-nægjandi þekking liggi fyrir, er hagnýta megi í baráttu við sjúkdóma, sem enn eru ó- læknanlegir, til að sporna við uppblæstri á viðkvæmum beitilöndum eða náttúruperlum, bæta stöðu ofnýttra fiskistofna eða skapa yngstu kynslóðum þjóðarinnar bætt uppeldis- og menntunarskilyröi, svo bent sé á nokkur brýn rannsóknarsvið, sem ekki hefur verið sinnt sem skyldi hér á landi? Öll ganga Nú á dögum þurfa hugvísindamenn meira en Jriö og fjööur" til aö stunda fræöisín. Oldin varönnurþegarOddur þýddi Nýja Testamentið. 12
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.