Ný saga - 01.01.1991, Side 31

Ný saga - 01.01.1991, Side 31
„ÚT VIÐ GRÆNAN AUSTURVÖLL“ Og fyrst farið er út í þá sálma: í fimmtu rímu, fjárlagarímunni, stendur þessi vísa: Matthías vorá vængjumþöndum vatt sér snjall að hrúgunni. Gullið kreisli í heljarhöndum Haraldur inn ebreski. „Matthías vor“ er vitasktild Matthías Jochumsson, þaö er þarft verk Vilhjálms Þ, Gíslasonar að grafa upp og birta áður óprentaða (að ég bezt veit) umsókn séra Matthíasar um hækkaðan „skáldstyrk“ og sýnishorn af smáskitlegu „fjárlagarexinu". „Haraldur inn ebreski” er Haraldur Níelsson, síðar prófessor. Orðmyndirnar „inn ebrezki“ eru hér bersýnilega til komnar til þess að forðast ofstuðlun (eru raunar ævafornar í málinu, sjá t.d. Fritzner). Vart mun þetta viðurnefni séra Haralds hafa náð að festast i vitund landsmanna. Ég minnist þess aðeins einu sinni, utan í Alþingisrímunum, og þá í „apókrýfum" kviðlingi: Haraldur inn ebreski og hringadokkin bceði lögðust ber á stokkinn úr bibltunni tók hann smokkinn. Hér er enn glímt við ofstuðlun. Getur annars verið, að þetta viðurnefni (eða uppnefni) klerks í vísunni sé komið úr Alþingisrímunum? Vísuna kenndi mér Atli Már, en honum hafði aftur kennt Guðmundur Sigurðsson, listagóður hagyrðingur („Dýrt spaug“) og allt eins líklegt, að hann hefði sjálfur kveðið; svo mun þó ekki vera.6 „Matthías vor á værtgjum þöndum/vatt sér snjati aö hrúgunni" Þessi einfalda skopmynd afþjóðskáldinu Matthíasi Jocumssyni er úr „Æringja" gamanriti sem kom út aðeins einu sinni 1908. Fyrir neðan myndina er kvæðið. „Friðriksmál " sem lýtur að konungskomunni 1907 og er skopstæling á stórhátíða- og eftirmælastíl séra Matthíasar eins og hann gerist verstur. Á FJÁRLAGAVÖLLUM Fimmta ríma er hin dæmigerða „fjárlagaríma", en áður en skilist er við þá fjórðu, skaðar ekki að líta ögn á eitt dæmi þess, sem ég hef áður nefnt eindregna, pólitízka afstöðu. Vísanersvona: Magnús skjaldsvein Flensborgfrá fékk ergat þó lítt íþraut; hildi sjaldan háði sá, heima sat hann mest við „slöjd". Magnús er margnefndur Magnús Stephensen. Skjald- sveinninn er Jón Þórarinsson, próflaus menntamaður, sem varð skólastjóri Flensborgar- skóla og síðar fyrsti fræðslu- málastjóri íslands. Hér jaðrar orðið skjaldsveinn við það að vera niðrandi, eða svo þykir mér. í orðabók Menningar- sjóðs, 1. útg., er það þannig skýrt: „Sá sem ber skjöld e-s annarsj vera s. e-s ganga erinda e-s“ (I menntaskóla var manni kennt, að þetta orðalag væri sjálfur plebeiismusinn upp- málaður, það ætti að segja reka erindi e-s, hitt merkti allt annað og væri einber dónaskapur). Jón er lítilmótlegur pólitíkus (gat lítið, þegar á reyndi) og enginn bardagamaður (háði sjaldan orrustu) en hímir heima við yfir jafnnauðaómerkilegu dútli og smíðakennslu (,,slöjd“). Það er með öðrum orðum hartnær níö í hverri ljóðlínu. Nú veit ég ekkert hversu mikið eða lítið Jón Þórarinsson átti skilið af öllu þessu. Hitt fer ekkert milli mála, að fyrri kona hans var alsystir Hannesar Hafsteins og seinni kona hans dóttir Magnúsar bónda í Viðey, Stephensens. Það hefur í þann tíð verið leitun að manni, sem var jafnnátengdur „lands- höfðingjaklíkunni“. Skyldi þar ekki vera komin altjent ein skýringin á útreiðinni, sem „smíðakennarinn“ fær? Sá er grunur minn. Það er raunar meira af þeim legg að skafa. Jón halði um þessar mundir 500 króna árlegan styrk til smíðakennslu sinnar. Þegar j^ess er gætt, að árslaun skólastjóra Flens- borgarskóla voru þá 1700 krónur, sést, hversu vel landsstjórnin launaði skjald- sveini sínum fylgdina, góða eða illa. Mega það undur heita, ef allir hafa verið jafnhrifnir af j^essari ráðsmennsku. - Það er Kristján Bersi Ólafsson sem benti mér á þetta. Dr. Jón Þorkelsson mun í daglegu tali hafa verið nefndur doktor Forni eða bara Jón forni, og mtin það algengara. I fimmtu rímu fær hann tvær visur: hildi sjaldan háði sá. Nœst þeim dugði doktor Foivi, dá'ltið varhann rykugur; sagt eráþeim sama morgni sást hann ganga óhultar. Dróttir til hans dijúga bita detta lét’ af borðum hám því annars þóttust allir vita hannyrkja mundi’ um þingið klám. Ekki minnist ég þess að hafa heyrt svo mikið sent eina klámvísu eignaða dr. Jóni. Af „þjóðkunnum vísum", sem Vilhjálmur Þ. Gíslason segir, að honum hafi verið eignaðar, minnist ég aðeins einnar, það er sú sem hann orti með Þorsteini Erlingssyni: Þar sem enginn Joekkir mann,/þar er gott að vera./Því að allan andskotann/er þar hægt að gera. Svo mikið er þó víst, að áhugamaður var hann um slíkan kveðskap. Þannig er mál með vexti, að bækur hans voru seldar Háskólabókasafninu í 29

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.