Ný saga - 01.01.1991, Side 35

Ný saga - 01.01.1991, Side 35
Agnes S. Arnórsdóttir FRÁ KVENNASÖGU TIL KERFISBUNDINNA RANNSÓKNA Asama hátt og Jón Sigurðsson beitti sögu- legum rökum í sjálf- stæðisbaráttunni forðum, hafa jafnréttissinnar leitað til fortiðar að haldbærum rökum í baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna. Er það upphaf kvennasögunnar. En þrátt fyrir að sagan hafi tilhneigingu til að eiga sér pólitíska bernsku er ekki þar með sagt að allt hennar æviskeið þurfi að bera þess merki. Brýnt er að láta ekki pólitíkina ráða yfir fræðilegri hlutlægni, þótt ljóst sé að fræðimenn hætta aldrei að vera börn síns tíma. hess vegna þurfum við að vera á verði í völundarhúsi fræðanna. Flestir kannast við þær tilraun- ir sem gerðar liafa verið til að„bæta konum við“hina almennu sögu. Einhverra hluta vegna hefur sú aðferð ekki reynst sem skyldi. Sú saga kvenna sem sögö hefur verið í almennum sagnfræðiritum er oftast í sérstökum köflum merktum kvenkyninu, og í fræðilegri umræðu vantar mikið á að viðfangsefni kvennasögunar séu tekin með í jxi sögu sem við köllum ýmist sögu þjóöar eða mannkyns. Sumir vilja kannski skýra þetta með hinum unga aldri kvennasögunnar. Saga verður ekki endurskrifuð á einni nóttu og íhaldssemin gætir dyggilega gömlu góðu hefðarinnar, en hún var lengi vel að saga karla var saga þjóðar eða mannkyns. Öllu líklegri skýring er þó að aðferöin sem notuð hefur verið við kvennasögurannsóknir hefur bara ekki dugað nógu vel. Sú kvennasaga sem stunduð var á bernskuskeiði greinarinnar var bæ'ði til gagns og gamans. Um var |3Ó að ræða svipaða tegund sögu og gömlu karlasöguna sem ekki heldur var vel til þess fallin að segja heildarsögu. Eins og við könnumst við var karlasagan lengi saga hins opinbera stjórnmálalífs j:>ar sem karlar voru í öllum aðallilutverkum. Sú saga á eins mikinn rétt á sér og sagan af konum sem fengust við uppeldi og matreiðslu. Þessar sögur um karla og konur verða fyrst varhugaverðar þegar við förum að draga rangar ályktanir af þeim. Rangt er lil dæmis að segja að öll pólitísk ákvarð- anataka hafi eingöngu verið í höndum karla og að bara konur hafi fengist við uppeldi barna. Það er svo pólitík að sagan um húsmæður hefur aldrei hlotið þann heiður að kallast þjóðarsaga. Segja má að almennt sé býsna mikiö að gerast í kvenna- sögurannsóknum bæði hvað varðar aðferðafræði og Sú kvennasaga sem stunduð var á bernskuskeiði greinarinnar var bæði til gagns og gamans. Um var þó að ræða svipaða tegund sögu og gömlu karlasöguna sem ekki heldur var vel til þess fallin að segja heildarsögu. kenningasmíð. Þessar rann- sóknireru jafn forvitnilegar fyrir þá sem ekki hafa sérstaklega fengist við að athuga sögu kvenna, og hina sem eitthvað hafa fengist við slíkar athuganir. ÞRÓUN í KVENNA- SÖGURANNSÓKNUM Þegar rannsóknir í kvennasögu hófust, var markmiðið að finna heimildir um konur og skrifa kvennasögu, helst inn í hina almennu sögu. Eftir um það bil tveggja áratuga rannsóknir hefur kvennasagan ekki enn birst í yfirlitsverkum um sagnfræði. í besta falli er hægt að finna einstaka kafla um stöðu kvenna í allra nýjustu verkum.1 í ljós hefur komið aö hér er um býsna flókið verkefni að ræða. Fáir efast um að konur hafi skipt máli í sögulegri jtiróun, en heim- þaö er pólitlk aö húsmæörasaga hefur ekki hlotiö sess þjóöarsögu. 33

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.