Ný saga - 01.01.1991, Síða 40

Ný saga - 01.01.1991, Síða 40
Agnes S. Arnórsdóttir að mestu um karla. Þó er mögulegt að lesa um konur í þessum heimildum og með því að bæta þeim við karlasöguna sjáum við karlana í öðru ljósi og í meira samhengi. Aðferðin bak „kynjasögunnar“ minnar var að lesa saman Sturlungu og Grágás og bera saman ákvæði um réttindi og skyldur karla og kvenna. í ljós kom að þessar tvær heimildir höfðu langt í frá sömu sögu að segja. Ég hóf þá leit að skýringum í sjálfu sam- félagskerfinu og valdi að athuga ættina og þróun hennar. Það mynstur sem sú rannsókn leiddi af sér hafði ég síðan að leiðarljósi við túlkun heimildanna um ólíka stöðu kynjanna. Þróun ættakerfisins og ætta- og fjölskyldutengsla gáfu vís- bendingu um aukna miðstýringu (engin ný sannindi!) og afleiðingin varð minnkandi umsvif og áhrif fjölskyldu- og ættartengsla í allri stjórnsýslu. Þetta þýðir að hinu formlega valdi óx ásmegin á kostnað óformlegra valdaathafna. Við endurlestur Grágásar og Sturlungu varð mér ljóst að þjóðfélagsþróun 12. og 13. aldar getur skýrt af hverju konur virð- ast vera valdaminni samkvæmt Grágás en Sturlunga sögu. Þó getur Grágás stundum bent okkur á hvað konur voru að bauka. Lagaákvæði um að konur hafi ekki leyfi til að kaupa vörur til búsins án samþykkis karla, bendir til að einhverjar kellur hafi verið að fást við meiri innkaup en körlum líkaði. Bæði Grágás og Sturlunga- saga eru góðar heimildir um utan stokks líf íslenskra mið- aldamanna. Þær eru að öllum líkindum skráðar af körlum og spegla því fyrst og fremst heim karla. Einna helst er sagt frá konum þegar þær eru í námunda við aðalsögusviðið - sem er að mati karla þeirra eigið. Ekki er víst að svo hafi verið, en úr því geta þessar heimildir ekki skorið. Einmitt þess vegna verðum við að geta í eyður, endurskoða heimildir, bera saman og reyna að geta í eyðurnar. Slík leit er og verður hlutverk sagnfræðinga hvers txma. í þriðja hefti Nýrrar sögu benti franski sagnfræðingurinn Jacques Le Goff á að þörf væri á nýjum rannsóknum á valda- hugtaki miðalda.20 I rann- sóknum mínum hef ég bent á að bæði bein og óbein áhrif kvenna á stjórnmál 12. og 13. aldar hafi verið töluverð og því full ástæða til að gefa miðaldakerlingum gaum í pólitískri sögu timabilsins.2' Konur skiptu máli í pólitíkinni og var meginástæðan ekki persónulegir eiginleikar þeirra, þó að sumar þeirra hafi verið liinir mestu skörungar. Ástæðan liggur fremur í ætta- og fjölskyldukerfinu. Framan af þjóðveldistímanum gátu konur notið sterkrar pólitískrar stöðu; þær gátu haft áhrif á þróun atburða og bæði beint og óbeint stýrt körlum sínum í ýmsar áttir. Samfara minnkandi valddreifingu á 13. öld og aukinni miðstýringu minnkaði bein aðild kvenna að stjórnmálum. Ákvæði Grágásar um takmörkuð réttindi kvenna má túlka í þessu ljósi; þar er að finna tilraun sem er afleiðing almennar mistýringaráráttu sem þýddi samþjöppun valdsins í hendur fárra karla. Þessi þróun varð til þess að pólitíkin hvarf meira af yfir- ráðasvæði kvenna innan stokks, og að öllum líkindum hefur Þjóðernissinnuð kartasaga „kom sá og sigraði" í kjölfar sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. heimavöllurinn farið að skipta minna máli í pólitískum samningum manna á millum. Konur héldu þó áfram að hafa pólitíska þýðingu og þær gátu haft töluverð áhrif meðal annars við að eggja karlana til dáða. Þá voru konur settar í nefndir til að úrskurða bótaupphæðir. Það má skýra á þann hátt að á þær hafi verið litið sem hlutlausa aðila sem stóðu utan við deilumál karla. Á þann hátt hafi konur ekki verið skilgreindarsem beinir þátttakendurí pólitísku lífi.22Um þetta höfum við fleiri dæmi í Grágás og má þar nefna lagaákvæðin um að konur megi ekki bera voþn né vera goðar.25 Hins vegar finnast fleiri dæmi Sturlungu um að konur mættu til þings og skiptu sér af málum bæði þar og í námunda við vígvellina.2' Full ástæða er því til að efast um að miðaldakarlar segi alla söguna þegar þeir vilja halda því fram að þeir einir hafi fengist við pólitík. Spurningin hér er hvernig hugtakið pólitik er skilgreint! Rannsóknir í kvennasögu sem byggjast á kerfisbundinni athugun á stöðu kynjanna og því samfélagi sem þau hrærast í er mikið meira en saga kvenna. Það er því full ástæða til að gefa þessum rannsóknum gaum, hvort svo sem við skilgreinum okkur sem karla-, Einmitt þess vegna verðum viö að geta í eyður, endurskoða heimildir, bera saman og reyna að geta í eyöurnar. Slik íeit er og verður hlutverk sagnfræðinga hvers tíma. 38
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.