Ný saga - 01.01.1991, Page 43

Ný saga - 01.01.1991, Page 43
gegnum nefndina, sem heldur fundi aðra hverja viku, má segja að borgaryfirvöld fái yfirsýn yfir j:>að sem stofnanirnar eru að gera. Nefndin skiptir sér ekkert af daglegum rekstri heldur má segja að þetta sé fyrst og fremst einskonar stuðningur við viðkomandi stofnanir t.d. varðandi fjármál. Menning- armálanefnd er ekki ætlað að hafa frumkvæði að stefnu- mörkun um starf þeirra stofnana sem undir hana falla. Hins vegar er henni ætlað að staðfesta t.d. ráðningar í stöður en þá er lögð fyrir hana tillaga um ráðningu í ákveðna stöðu sem hún getur síðan samþykkt eða gert athugasemd við. Það er líka menningarmálanefnd sem hefur frumkvæði að því hver er ráðinn í stöðu forstöðumanns safnsins en þá leggur hún tillögu um Joað fyrir Borgarráð til staðfestingar. Nefndin gétur líka lagt ýmislegt til við stofnanirnar og haft jxmnig áhrif. Hverjir starfa svo á safninu og bvaö aöhafast þeir? Árbæjarsafn er sögusafn Reykjavíkur og starfsemi þess snýst þar af leiðandi um rannsóknir og kynningu á Reykjavíkursögu, bæði með útgáfu, safnfræðslu og upp- setningu sýninga. Ef byrjað er á því sem lýtur að endurbyggingu húsanna á safninu, þá eru fimm smiðir starfandi við hana en þó sinna þeir fleiri störfum jafnframt i hönnun og smíði fyrir sýningar, að ógleymdum innréttingum á geymslum. Á meðal þessara fimm smiða er ráðsmaður safnsins sem einnig sér um gæsluna. Á skrifstofunni eru fimm safnverðir núna en ný staða var samþykkt nú nýlega. Þessi hópur samanstendur af sagnfræðingi sem aðallega hefur umsjón með myndadeildinni en einnig með gerð húsaskrár fyrir Reykjavík, arkitekt sem hefur með höndum bygginga- sögulegar rannsóknir. Þær eru oft unnar í samráði við Borgarskipulag eins og til dæmis rannsóknir á álcveðnum hverfahlutum vegna endur- skoðunar Aðalskipulags. Arkitektinn hefur með höndum hönnun og uppbyggingu safnhúsanna og eins einstakar úttektir á húsum sem koma inn á borð til okkar varðandi t.d. niðurrif eða flutning á húsum. Annar safnvörður hefur umsjón með minjageymslu, söfnun gripa og skráningu þeirra. Sá fjórði er sagnfræðingur sem hefur með höndum sýningarstarf safnsins. Hann hefur umsjón með uppsetningu og viðhaldi sýninga, það er að segja eftirliti með textum og endurskoðun og j:>ví að allt líti eðlilega út og lagi það sem fer á einhvern hátt úr skorðum. Þar fyrir utan er safnkennari sem hefur með safnfræðsluna að gera, jafnt safnkennslu sem og leiðsögn fyrir hópa að vetri til. Safnfræðslan felur í sér móttöku skólabarna og safnkennslu í tengslum við námsefni barna í skólum og útbýr safnkennarinn námsefni fyrir hina ýmsu aldurshópa. Fyrir utan þessa fimm aðila sem eru sérfræðingar safnsins þá er starfandi forvörður í tengslum við uppgröftinn í Viðey sem sér um viðgerð og viðhald fornleifanna sem finnast við gröftinn. Þá er starfsmaður á skrifstofunni sem aðstoðar við skráningu safngripa og svo Þessa mynd af bæjarhúsunum í Árbæ tók Ralph Hannam 1948, ári eftir að búskapur lagðist þar af. 41

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.