Ný saga - 01.01.1991, Page 47

Ný saga - 01.01.1991, Page 47
okkur og það má kannski líka hafa það til vitnis um að fólk virðist líta á Árbæjarsafn sem borgarsafn. Er hugsatilegt að dæmigerl einbýlishús frá sjöunda áratugnum verði að finna á safninu þegar fram líða stundir? Ég sé nú ekki fram á það. En samtímasöfnun snýst auðvitað ekki bara um að safna því sem verið er að nota í dag, heldur er átt við síðustu áratugi; tímabilið eftir stríð. Við erum reyndar að láta okkur dreyma um að setja upp sýningu á næsta ári um sjötta áratuginn og fara þá um leið af stað með söfnun á munum frá þeim tíma. Eti ertu sátt við þá ímynd sem að safnið hefur ttteðal almennings? Safnið er náttúrlega í upp- byggingu ennþá, það jxirf að bæta heilmikið; það þarf kannski að fræða almenning meira um livað er um að vera. Þetta er orðið gamalt safn, yfir þrjátíu ára gamalt, og það eru margir sem að kannski heimsóttu það fyrir mjög löngu síðan og átta sig ekki á því að það eru orðnar ýmsar breytingar; safnið hefur vaxið og þróast og áherslur hafa breyst. Það þarf jtví stöðugt að hafa kynningu í gangi, stöðugt að skerpa hugmyndir fólks um þá starfsemi sem þar fer fram, því hún er alltaf að breikka og aukast. Sennilega verður maður aldrei fyllilega ánægður. Aðsókn hefur hins vegar stóraukist síðustu ár og Jtað bendir auðvitað til að safnið nái betur til fólks en áður. Finttst þér samt áberandi að fólk hafi úreltar hugmyndir um safnið og komi ekki af þeim söktim? Mér finnst jtað stundum, sérstaklega þegar ég heyri fólk segja „Ég hef ekki komið þarna síðan ég var krakki", „Ég hef ekki komið þarna í tuttugu ár“og |tá virðist jtað ímynda sér að safnið sé ennjrá eins og það var þá. Eitt af því sem veldur þessu er kannski það að fólk sem hefur starfað á söfnum gegnum tíðina hefur oft verið grúskarar og fræðimenn sem hafa viljað vera óáreittir í sínu grúski og hafa kannski ekki mikið verið að leggja upp úr kynningu og að leitast við að vekja athygli fjölmiðla og almennings á því sem fer fram innan safnanna. Það er kannski fyrst með þeirri kynslóð sem er starfandi á söfnum í dag sem hugmyndir eru að breytast hvað þetta varðar. Þetta er þjónusta við almenning og það verður að koma því áleiðis og það þarf að virkja fjölmiðla og vekja áhuga joeirra á joví sem fram fer. Það þarf t.d. að huga að því í okkar sýningarundirbúningi og sumarstarfsemi að reyna alltaf að vera með eitthvað sem er fréttnæmt til að ná til fjölmiðla. Ett ttú hafið þið farið inti á nýjarbrautirá síðustu árunt, með svonefndum starfs- döguni og fleiri sýningum, Elvert var markmiðið með þvt og hvet'tiig hefur tekist til? Safnið er búið að vera í uppbyggingu og er enn og verður það næstu árin. Það er kannski búið að ná því stigi núna að það er komið þarna skemmtilegt umhverfi sem býður upp á óþrjótandi möguleika, bæði hvað varðar sýningar og safnfræðslu. Það þýðir að við getum farið að leggja meiri áherslu á hvað hægt er að gera á þeim vettvangi. Meðal annars þess vegna hefur verið farið Félagar úr gllmudeild Ármanns I hráskinnsleik á Árbæjarsafni 4. ágúst Wál.Gllmudeild Ármanns, sem er elsta íþróttafélag landsins, hefur lagt sig eftir vitneskju um fornar íþróttir landsmanna og kynnt þær meö sýningum. 45

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.