Ný saga - 01.01.1991, Page 51

Ný saga - 01.01.1991, Page 51
er það gert upp sem safngripur. Þá er fyrst og fremst lögð áhersla á sögu þess en ekki verið að hugsa neitt um notagildi þess sem íbúðar- húsnæðis. Eitt af því sem arkitektinn sem nýtekinn er til starfa á safninu kemur hug- sanlega til með að gera, er að annast ráðgjöf um endur- byggingu gamalla húsa fyrir hverja þá sem í slíku standa. Það er þó allt saman í mótun ennþá. Hvemig er háttaö ferlinu í kerfinu og ákvaröanatöku fyrir einstök hús? Samkvæmt nýjum þjóð- minjalögum þá eru öll hús sem byggð eru fyrir 1900 undir ákvæðum þeirra og það þýðir að það má ekki breyta húsunum, rífa þau eða flytja þau nema að fengnu samþykki Húsafriðunarnefndar ríkisins. Öll hús sem eru byggð fyrir 1850 eru alfriðuð á staðnum. Þá má ekkert hrófla við þeim; það er á þeim sjálfvirk friðun. í borginni gengur þetta þannig fyrir sig að það er sótt um leyfi til niðurrifs til Bygginganefndar sem vísar umsókninni til Umhverfismálaráðs, sem er pólitísk nefnd, sem aftur fær umsögn Árbæjarsafns um varðveislugildi húsanna og tekur tillit til þess í sinni umsögn til Borgarráðs, þ.e. hvort veitt verður leyfi til niðurrifs eða ekki. Síðan er þar fyrir utan starfandi svokölluð Þriggjamannanefnd um verndun borgarminja sem í sitja borgarminjavörður, forstöðu- maður Borgarskipulags og borgarverkfræðingur. Það er nefnd sem á að fjalla um verndun borgarminja og marka einhverja stefnu í húsa- verndunarmálum í borginni. Hún er svo til nýskipuð; hefur verið starfandi í rúmt ár. Finnst þér vera lekiö nœgilega tnikiö tillit til vemdunarsjónarmiða? Ég held að það sé að breytast mikið frá því sem áður var. Það má náttúrlega endalaust segja að ýmislegt megi betur fara. Hins vegar lteld ég að bara á síðasta ári hafi hlutir gerst sem eru í rétta átt. Það er t.d. nýtt að við séum farin að geta tekið virkan þátt í skipulagsstarfinu í borginni með auknu samstarfi við Borgarskipulag. Ef við tökum sem dæmi Vesturbæinn sem nýlega var verið að hefja endurskoðun á, þá var umsögn höfð til hliðsjónar í úttekt sem safnið vann um það hvaða hús og minjar ætti að halda í. En auðvitað kemur það alltaf fyrir öðru hverju að það eru hunsaðar tillögur frá okkur. Teluröu aö þólitík hafi ráöiö umrœöunni unt húsvernd- unamiál í of miklum tnœli? Ja, áður kannski en ég verð ekki mikið vör við það í dag. Það hefur orðið svo mikil umhverfisvakning bæði hér og annars staðar og húsvernd er kannski orðin hluti af því. Ég er þó ekki að halda því fram að húsvernd sé eitthvað seni allir eru orðnir sammála um. Það eru mjög skiptar skoðanir um hana ennþá, en mér finnst samt að mál séu að þokast í rétta átt hvað varðar að taka tillit til þess sem skiptir máli. Hvemig er svo samstarfiö í þessari Priggjamanna- nefnd? Þaö hefur verið ntjög gott. Það hefur oft verið að frumkvæði Árbæjarsafns sem eitthvað er tekiö fyrir í nefndinni og það hefur verið tekið mjög gott tillit til okkar tillagna. Við höfum nánast verið sammála í öllum atriðum, þannig að þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel. Það hefur verið mikill styrkur og orðið til þess að auðvelda baráttuna fyrir húsunum í Reykjavík. Það sem kannski helst gerir þessa Þriggja- mannanefnd mikilvæga er að við erum ekki lengur bara að svara beiðnum um umsagnir, þar sem við erum eingöngu að segja já eða nei við niðurrifi, heldur erum við með einhverja stefnu í gangi sem við erum að vinna eftir. Við erum að leggja til ákveðna hluti í stað þess að gefa jákvæðar eða neikvæðar umsagnir um tilverurétt einstakra húsa, hingað og þangað, þar sem við ráðum engu um hvað er tekið fyrir. Hver er sú stefna sent Þriggjamannanefnd hefur kontiö sér niöur á? Við erum öll sammála um það að það eigi að halda í þennan gamla kjarna í miðbænum og ekki bara hvert hús fyrir sig heldur að það séu einhver tengsl innbyrðis. Sem dæmi má nefna að reynt verðtir að halda í húsin sem eru í kringum Torfuna í Lækjargötu og halda tengslunum frá Dómkirkjunni yfir í Alþingishúsið og þessa gömlu húsaröð í Kirkjustræti sem var í niðurrifshættu út af A1 þ i n g i s h ú s s b y g g i n g u n n i fyrirhuguðu. Það var að tillögu okkar að þau hús fengu að standa áfram, meðal annars til að mynda tengsl upp í Grjótaþorp. Það er mikilvægt að það séu samfelld tengsl á öllu þessu svæði. Það er líka samkomulag í nefndinni að stefna að því að í stað þess að rífa hús eða flytja á safn sé betra að fylla í skörð innan þessa ákveðna kjarna með húsum sem af einhverjum ástæðum verða að víkja. Þar erum við ekki að meina að fylla upp í skörð bara til þess að fylla upp t skörð, heldur er þarna átt við að hús sem verða að víkja, eins og ísafoldarhús við Austurstræti og Zimsen húsið, að þau verði frekar flutt til innan þessa svæðis. Þetta kemur líka í veg fyrir að það verði byggð ný hús í þessi skörð sem er að finna á svæði sem á stánda gömul hús og stuðlar þannig að því að undirstrlka þessa gömlu byggð 49

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.