Ný saga - 01.01.1991, Side 60

Ný saga - 01.01.1991, Side 60
En í ístandssögu er ekki þvílík offramleiösla ar rannsóknumaö viö séum ekki fegin öllum veigamikium verkum þótt misgóö séu aö einhverju leyti. þeim töm eftir langdvalir í enskumælandi löndum - hjá sumum er textinn líka vaðandi i villum - heldur eru þeir að hugsa um lesendur sem ógjarna lesa sænsku (og meðal þeirra má auðvitað telja marga ís- lendinga). Yfirlitin yfir ritraðir sýna líka, að margir Svíar skrifa doktorsritgerðir sínar á ensku, og inn á milli eru ritgerðir á þýsku og frönsku. Háskóli Islands tekur svosem líka gildar doktorsritgerðir á ýmsum málum; úr heimspekideild minnist ég dæma á ensku, þýsku og færeysku, en þar eru höfundar að rita á móðurmáli sínu. Þótt nú sé verið að taka upp skipulegt doktorsnám í sögu við Háskóla íslands sé ég varla fyrir mér að þar skrifi íslenskir stúdentar ritgerðir hjá íslenskum kennurum öðru vísi en á móðurmálinu. Og ættu þó rökin fyrir enskunni að vera enn sterkari í okkar fámenni en þau eru við sænska háskóla. Svíar halda, eins og við, í þá gömlu reglu að doktorsritgerðir séu prentaðar. Sú regla sannar gildi sitt á þeim bókum sem hér eru til umræðu. Jafnvel bók Gísla Gunnarssonar, sem varla var hætta á að ekki fengist útgefin á íslandi, var fjögur ár á leiðinni, og á þeim tíma voru upplýsingar og túlkanir úr ritgerðinni komnar til verulegra áhrifa í íslenskri sagnfræði af því að enska gerðin var mönnum aðgengileg. Bók Magnúsar Magnússonar, sem erfiðara hefði verið að finna útgefanda að, hefur einnig haft áhrif og talsvert sést til hennar vitnað,1 en óútgefin hefði hún miklu minna nýst, jafnvel þótt ljósrit heíðu e.t.v. komið á fáein rannsóknarbókasöfn. Svipað má segja um fleiri af þessum bókum. Til samanburðar má leiða hugann að doktorsritgerðum íslendinga frá breskum háskólum, t.d. Þórs Whitehead og Inga Sigurðssonar (svo að dæmi séu sótt í „innsta hring“ stéttarinnar, þ.e. háskóla- kennarana), sem miklu minna verður vart við. Nema að því leyti sem efniviður þeirra nýtist í síðari verkum höfundanna, en það tekur allt sinn tíma, og því er betra að hafa til bráðabirgða greiðan aðgang að doktors- ritgerðinni í upphaflegri mynd. Bretar munu hugsa þetta þannig að ekki eigi erindi á prent nema þær merkari af doktorsritgerðunum. Og sé þeim þá hollt að ganga í gegnum hreinsunareld hjá bókaforlagi þar sem höfundur fær aðstoð og aðhald við að sníða af vankanta. En í íslandssögu er ekki þvílík of- framleiðsla af rannsóknum að við séum ekki fegin öllum veigamiklum verkum þótt misgóð séu að einhverju leyti. Og útgáfa í fræðilegri ritröð erlendis stendur ekki heldur svo mjög í vegi fyrir því að doktorsritgerð fáist þýdd og endurskoðuð fyrir íslenska lesendur, eins og í dæmi Gísla Gunnarssonar, eða efni hennar birt í öðru samhengi, t.d. í tímaritum. Vissulega bera sænskar doktorsritgerðir með sér að vera gefnar út á ódýrari hátt en íslenskar jólabækur. Þetta kemur þó minna að sök á tölvuöld. Rit Péturs og Gísla Gunnarssonar eru smækkuð vélrit, heldur óséleg; rit Magnúsar er millistig, vélritað að hluta; en yngstu doktorsritgerðirnar eru með snotru prentletri, neðanmáls- greinum og öðru sem við á. Sagnfræðistofnun Háskólans reyndi á sínum tíma að gefa út ritröð sína, Sagnfræði- rannsóknir, eftir vélriti, en guggnaði á því fljótlega og færði ritin í jólabókasnið. Nú má e.t.v. hugsa það mál upp á nýtt, a.m.k. fyrir hið viðhafnarminna Ritsafn Sagnfræðistofnunar. VERKALÝÐSSAGA: MAGNÚS OG STEFÁN Eg taldi áðan rit þeirra Þorleifs og Stefáns til verkalýðssögu. Hin víðtæka hagsögukönnun Magnúsar er líka einkanlega sett fram sem baksvið við verkalýðssöguna. Síðustu kaflar hans fjalla um atvinnuskiptingu (þar sem Reykvíkingum og konum er sérstaklega gaumur gefinn); laun og kjör; framfærslumál, almanna- tryggingar og atvinnuleysi; og loks um þróun verkalýðs- hreyfingarinnar fram á 4. áratuginn. Síðastnefndur kafli 58

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.