Ný saga - 01.01.1991, Page 80

Ný saga - 01.01.1991, Page 80
Hvers vegna snúa sagnfræöingar sér ekki til forráöamanna Sjónvarpsins og rökstyöja nauösyn þess aö koma á auknu samstarfi. vegar sagnfræðingar vilja ná fram stefnubreytingu hjá Ríkissjónvarpinu þannig að þegar gerðir em sögulegir þættir þá sé sjálfsagt mál að leita til sagnfræðinga og þeir ráðnir til samstarfs þá verður stéttin, Sagnfræðingafélagið, að gera eitthvað í málunum. Hvers vegna snúa sagnfræðingar sér ekki til forráðamanna Sjón- varpsins og rökstyðja nauðsyn þess að koma á auknu samstarfi? I>iö getið líka gert það sama og nýútskrifaðir leikarar gera stundum. Þeir ganga á röðina hjá fyrirtækjum sem starfa að kvikntyndagerð, kynna sig og segjast reiðubúnir til samstarfs jíiegar tækifæri gefst. Fólk lætur vita af sér. Sagnfræðingar eiga líka að snúa sér til kvikmyndafyrirtækja í einkaeign. Þar eru ýmsir möguleikar á samstarfi sem á að geta orðið miklu öflugra en veriö hefur. í kjölfar aukins samstarfs þessara aðila gæti svo komið meira frumkvæði frá sagnfræðingum. Annað mál er svo að kvikmyndagerð er dýrt fyrirtæki og hvaðan eiga peningarnir að koma? Eggert: Frumkvæðið getur líka komið frá einkaaðila. Ég þekki dæmi þar sem sagnfræðingur er fenginn til að skrifa handrit að leikinni kvikmynd og nokkrum sjónvarpsþáttum. Áhugi á samvinnu virðist iðulega vera meiri hjá einkafyrirtækjum. Hins vegar er varla hægt að tala um aukið samstarf á meðan við einblínum nánst eingöngu á hið ritaða mál. Megináherslan er lögð á samningu texta, kunnáttu við aö byggja upp ritgerðir og þvíumlíkt. Þegar kemur að myndmáli erum við enn sem reifabörn. Helgi: Ég held að þetta sé okkur ekki eins framandi og þú heldur. það er búið að halda því nokkuð stíft að yngri kynslóð sagnfræðinga að það geti vel komið til greina að segja sögu með myndum, láta myndir Tækjabúnaöur sjónvarps er flókin og sífellt aö breytast. Ættu sagnfræðingar aö kynna sér þau mál betur ? tala. Mér sýnist að fólk sé fariö að hugsa mjög mikið í myndum. Við megum ekki tala þannig að myndrænt efni sé algerlega framandi fyrir sagnfræðinga. Þetta er tímanna tákn og Fledelius er dálítið harður og er örugglega að skamma einhverja gamla karla sem hafa ekki hugsað myndrænt. Hér er i raun verið að tala um tvö mál, annars vegar að búa til þætti, hins vegar að „lesa“ kvikmyndir, átta sig á jiví hvernig kvikmyndir eru gerðar og horfa á þær með gagnrýnum augum. Ég held að mjög brýnt sé að koma inn á kvikmyndir sem heimildir í aðferða- fræðinámi við sagnfræði í HÍ. Ég hefði mikinn áhuga á því að komast yfir svona efni. hað er t.d. búið að vinna gífurlega mikið í áróðursmyndum nasista. Það er ákaflega lærdómsríkt að fjalla um falsanir alls kyns,- auk þess sem það er skemmtilegt. Þetta 78

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.