Ný saga - 01.01.1991, Síða 85

Ný saga - 01.01.1991, Síða 85
Blómatíð í bókaey hét þáttur sem Helgi Þorláksson gerði um spgu Flateyjar á Breiöafirði og sýndur var í Sjónvarginu fyrr á árinu. I sögulegum sjónvarpsþætti um Flatey hlýtur aðalleikarinn að vera eyjan sjálfmeð husum og minjum sem eru til vitnis um ákveðin tímabil. Við gerð sjónvarpsefnis er lykiatrioi að hugsa myndrænt og láta myndirnar ekki drukkna I orðum. lagður.. Helgi: „í skugga hrafnsins" er ofboðslegt rugl um þjóð- veldistímann. Við sagnfræðingar erum að reyna að leiða í ljós hvað gerðist og hvað sé sannast og réttast. Viö erum að reyna komast sem næst réttum skilningi á því sem gerðist, losa okkur við ranghugmyndir og reynum að forðast að láta samtíma okkar liafa of mikil áhrif á það sem við erum að gera. Ut frá því sjónarmiði er rangt að halda úreltum söguskilningi að þjóðinni. Þetta finnst okkur sem sagnfræðingum en eg held að almenningur láti sér fátt um finnast. Ætti sagnfræðingum að standa á sama? Erlendur: Það fer auðvitað eftir eðli verkefna hvort sagn- fræðingar fá þar aðgang eða ekki, hvort þeir eigi þar nokkurt erindi. Hvareiga þeir erindi og hvar ekki? Erlendur: Ef markmiðið er að reyna að lýsa veröldinni eins og hún var á tilteknum tíma sem réttast, þ.e.a.s. ef menn eru að fjalla um fortíðina af pví að þeir hafi einhvern áhuga á fortíðinni sem slíkri og að hún sé ekki leiktjald fyrir eigin fantasíu,- þá eiga þeir erindi. Það er mikill munur á heimildarþætti og leikinni kvikmynd. Eggert: Undanfarin tíu ár hafa verið gerðar ótrúlega margar leiknar kvikmyndir hér sem fjalla um söguleg efni, u.þ.b. jDriðjungur íslenskra kvik- mynda. Ég held að við gerð þeirra hafi ekki verið leitað liðsinnis margra sagnfræðinga. Helgi: Það getur verið mikilvægt upp á að skapa rétt andrúmsloft, hafa umhverfið rétt o.s.frv. Ég held að áhyggjur kvikmyndagerðarmanna beinist mjög mikið að búningum, vopnum og þess háttar atriðum. Ég veit að mjög mikið er leitað á Þjóðminjasafnið til að fá ráðgjöf þaraðlútandi. Mér finnst mikilvægt að atriði varðandi umgjörðina séu gerð rétt og að borin sé virðing fyrir tímanum. Einhvern veginn verður maður að leysa jretta vandamál, vera nákvæmur og bera fullkomna virðingu fyrir tímanum en gera samt góða mynd sem gaman er að horfa á. Þarna finnst mér vera verkefni fyrir okkur að hugleiða og leysa. Meistari Þórbergur segir að nákvæmni geti verið aðlaðandi og skemmtileg. Vönduð vinnu- brögð borga sig alltaf. Þiö leggiö mikla dherslu á aö menn kynni sér þaö myndefni sem til er. Hvemig er varðveislu lifandi ntynda háttaö hér á landi? Hversu góöan aögang höfunt viö aö slíku efni? Erlendur: Ástandið í þessum efnum er langt frá því að vera nógu gott. Einfaldast af öllu væri að allt myndefni væri til á myndböndum þannig að fólk gæti gengið í eins konar myndbandabanka til að kanna jtað, en áður en það getur orðið þarf kostnaðursöm viðgerð efnisins að fara fram. Mikið af efni sem safnast hefur til Kvikmyndasafnsins hefur verið í alls konar ásigkomulagi og það er dýrt að leysa öll þau vandamál sem þar blasa við í sambandi við gerð gamalla kvikmynda. Talsverð viðgerð hefur farið fram og verið fært yfir á myndbönd en það er tætingslegt og mikið verk óunnið. Þetta er fáliðuð stofnun og erfitt að gera allt sem gera þarf. Eitthvað er enn til af efni á Fræðslumyndasafninu. Svo er Sjónvarpið orðið opnara fyrir því að veita aðgang að því efni sem þar er. Það var eiginleg alveg lokað fyrir almenningi fram á siðustu ár. Hefur Sjónvarþiö mótaö eitthvetja stefnuívaröveislu tnynda? Erlendur: Það mál er eiginlega kapítuli út af fyrir sig og efni í sérumræðu. Fólk heldur oft að Sjónvarpið sé eins konar myndaalbúm þjóðarinnar sem safnað er í og að þar verði til mikið safn af merkilegu efni. Auðvitaö verður þar til merkilegt safn en gífurlega margt fer samt forgörðum. Það er á vitorði margra að hjá Mér finnst mikilvægt aö atriöi varðandi umgjöröina séu gerö rétt og aö borin sé viröing fyrir tímanum. Einhvern veginn veröur maöur að leysa þetta vandamál, vera nákvæmur og bera fullkomna virðingu fyrir tímanum en gera samt góöa mynd sem gaman er aö horfa á. 83
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.