Ný saga - 01.01.1995, Blaðsíða 18
Guðni Thorlacius Jóhannesson
Mikið gekk á við Reykjavíkurhöfn allt frá
því síldarlöndunin hófst. Víkverji Morgun-
blaðsins fékk ekki orða bundist um miðjan
nóvember:
Forvitnir Reykvíkingar hópast í blíðviðr-
inu til að horfa á þessi undur. Strákarnir ná
sér í nokkrar síldar á kippu til að fara með
heim í soðið. Pað glitrar á stakka sjómann-
anna í haustsólinni sem eru þaktir síldar-
hreistri og hreistrið - þessar litlu silfuragn-
ir - þekur bryggjur og báta og göturnar
næst höfninni.
„Petta er eins og á Siglufirði,“ segja þeir
sem hafa verið fyrir norðan.
Ferðaskrifstofan auglýsir skemmtiferðir
upp í Kjós fyrir fólk, sem vill horfa á síldar-
skipin á Hvalfirðinum, um leið og auglýst-
ar eru ferðir að Gaukshöfða til að horfa á
eldana í Heklu™
Svona var stemmningin - en aftur að stað-
reyndunum. Á Siglufirði var hægt að losa
smærri flutningaskipin með löndunarkrana
SR, en stærri skipin urðu að leggjast að hafn-
arbryggjunni og þaðan óku vörubílar með afl-
ann í bræðslu."
í byrjun desember virtist löng löndunarbið
óumflýjanleg syðra. Á stjórnarfundi hjá SR
hinn 4. desember var vandamálið brotið til
mergjar. Eftir að kraninn góði var tekinn í
notkun í nóvemberlok bötnuðu aðstæður við
affermingu til muna, en á sama tíma hamlaði
veður flutningaskipunum úti fyrir Vestfjörð-
um og Norðurlandi þannig að svo stóð á að
nær öll skipin voru á norðurleið, en aðeins
nokkur á leið suður. Til að bæta gráu ofan á
svart var það þennan dag sem True Knot
hlekktist á undan Önundarfirði svo nota
þurfti einhver af skipunum, sem voru að
koma að norðan, til að taka við hluta af farmi
skipsins. Pá hafði skrúfan brotnað á öðru
flutningaskipi, Ólafi Bjarnasyni, og viðgerð
ekki fengist vegna verkfalls járnsmiða.
Á hinn bóginn var verið að hlaða Súðina,
en hún bar rúm 4.000 mál, unnið var við að
innrétta lestina í norska leiguskipinu Banan,
sem tók 14.000 mál, litlu skipin Sindri og
Sverrir voru tilbúin til fermingar og von var á
pólska skipinu Hel daginn eftir, en það rúm-
aði svipað og Banan."*1 Svona var staðan sem
sagt þennan dag: Enn var mikil veiði og
lestarrýmið, sem var fyrir hendi, dugði hvergi
nærri.
Á stjórnarfundinum benti Sveinn Bene-
diktsson því á byltingarkenndar hugmyndir til
að ráða bót á vandanum. Richard Thors,
framkvæmdastjóri Kveldúlfs, hafði viðrað
þann möguleika við hann hvort hægt væri og
hagkvæmt að geyma síld á opna svæðinu milli
fiskgeymsluhúsa fyrirtækisins við Vatnsstíg.
Þá hafði Sveinn sjálfur haldið til Hvítaness í
Hvalfirði og athugað hvort þar væri unnt að
geyma sfld. Par var stór hafskipabryggja, átta
skemmur og stórt steypt plan.101 Sveinn Bene-
diktsson sagði sfðar að ýmsar furðulegar til-
lögur hefðu kornið fram um geymslustaði fyr-
ir síldina í Reykjavík:
Ein tillagan var sú að láta rýma verbúðirn-
ar á Grandagarði og hvolfa síldinni ofan í
þær um þakglugga, önnur um að fylla Fisk-
iðjuver ríkisins af bræðslusíld og tveir
komu með tillögu um það að nota laugarn-
ar í Sundhöll Reykjavíkur og Sundlaugun-
um sem sfldarþrær og voru þessar tillögur
gerðar í fúlustu alvöru.102
Einnig kom til tals að flytja aflann með vöru-
bflum frá Akranesi til nýju síldarverksmiðj-
unnar á Skagaströnd en ekki varð af því
vegna þess að óvíst var hvort hún væri starf-
hæf, vegurinn var illfær á köflurn og flutning-
arnir hefðu orðið mjög kostnaðarsamir."13
Á fundi sínum að kvöldi dags 5. desember
samþykkti stjórn SR að hefja móttöku síldar
til geymslu í Reykjavík daginn eftir. Útgerð-
armönnum var í sjálfsvald sett hvort þeir
seldu síldina í geymslu á 22 krónur málið,
biðu eftir flutningaskipi - kannski dögum
saman - en fengju þá 32 krónur ef landað væri
úr málum beint í skipið en 30 krónur og 50
aura ef nota þyrfti bíla til að selflytja sfldina.104
Sfldin var ekki geymd í sundlaugunum,
verbúðunum á Grandagarði eða hjá Kveld-
úlfi, heldur í grjótnámi bæjarins norðan nýja
Sjómannaskólans. Bjarni Benediktsson, sem
verið hafði borgarstjóri, benti Sveini bróður
sínum á þennan stað sem var tilvalinn; klapp-
ir á þrjá vegu og botninn tiltölulega sléttur því
þarna átti Knattspyrnufélagið Fram æfinga-
og keppnisvöll, 105 metra langan og 65 metra
breiðan. Samkomulag urn afnot af vellinum
tókst milli félagsins og verksmiðjustjórnar-
16