Ný saga - 01.01.1995, Page 38
Margrét Guðmundsdóttir
Mynd 6.
Á sjöunda áratug
19. aldar, um það
leyti sem Sigurður
málari var að hanna
búninga á íslenskar
konur, k/æddust kyn-
systur þeirra í Evrópu
sem fylgdust með
tískustraumum
gríðarlega fyrirferða-
miklum fatnaði.
áttu þó báðir búningarnir sameiginlegt, höf-
uðfatið eða faldinn. Sigurður taldi að hann
væri elsta arfleifð búningasögu íslendinga.
Strax árið 1857 hóf hann sérstaka varnarbar-
áttu fyrir höfuðfatinu, sem mörgum fannst
ljótt og afkáralegt. Sigurður ákallaði íslenskar
konur og sagði:
Látið því faldinn ættmæðra yðar vera yðar
heiðursmerki, af því að þær báru hann á
undan yður á höfðum sér, sem sigruðu
flestar konur með vitsmunum, tryggð, kurt-
eisi og skörungskap, en gætið yðar, ef þér
ætlið að kasta honum, að þér ekki kastið
um leið þjóðerni, tryggð og skörungskap
hinna fornu kvenna.36
Faldurinn átti að vera ímynd íslenskrar
kvenlundar. Sigurður var að gefa konum
sjálfsmynd sem íslenskum konum. Pær áttu
að temja sér skörungskap og tryggð frjálsbor-
inna formæðra sinna sem voru fullar af þrótti
hins sanna þjóðaranda. Málarinn gaf íslensk-
um konum ekki aðeins búning til að undir-
strika þjóðerni sitt. Hann benti þeim einnig á
fyrirmyndir, kvenhetjur fortíðarinnar. Konur
eins og Guðrún Gísladóttir og Þorbjörg
Sveinsdóttir ljósmóðir virðast hafa tileinkað
sér þessa kvenímynd.
Kenningar um eðli og einkenni kynjanna
hvíla iðulega á jafnveikum grunni og hug-
myndir um eðli og einkenni þjóða. ímyndir
og draumar geta engu að síður orðið öllum
raunveruleika sterkari. Goðsagnir sem þjóð-
ernishyggjan ól af sér lögðu til mikilvæg vopn
í árdaga kvennabaráttu á íslandi. Ein veiga-
mesta uppistaða í sjálfsmynd einstaklinga er
þekking á uppruna sínum og skilingur á for-
tíðinni. Þess vegna hefur kvennahreyfingin
jafnan lagt áherslu á að draga sögu kvenna
fram í dagsljósið. Faldar kvenhetjur fortíðar-
innar ættu að styrkja og efla sjálfsmynd kyn-
systra þeirra. í lok 19. aldar fundu formæður
okkar fyrirmyndir í kvenskörungum gullald-
arbókmenntanna. ímynd hinnar sterku ís-
lensku konu er afsprengi þjóðernishyggjunn-
ar. Málarinn Sigurður Guðmundsson á marga
skörpustu drættina í þeirri mynd.
36