Ný saga - 01.01.1995, Síða 71

Ný saga - 01.01.1995, Síða 71
Siðferðilegar fyrirmyndir á 19. öld ágætlega í sjálfsævisögu sinni livernig kvöld- vökurnar fóru fram. Þar drepur hann á hið nána samspil vinnu og menntunar og bætir síðan við hvaða tilfinningar lesefnið hrærði í brjóstum fólksins: Þegar lesarinn tók sér hvfld, tóku menn venjulega til máls urn sögurnar og hetjur þeirra og dærndu um þær frá ýmsum sjón- armiðum, oft af furðulegri skarpskyggni og dómgreind, jafnt konur sem karlar. Þetta var skynsamt fólk og andlega óþreytt og gat oft sett sig inn í sálarlíf söguhetjanna af mikilli nærfærni og næmleik. Þó var líf þess aðallega sífelld þrælkun frá nrorgni til kvölds.44 Þessi nálægð við lesefnið skipti sköpum fyrir börn og fullorðna. Skilningur þeirra og til- finning fyrir sögunum og innihaldi þeirra hafði úrslitaáhrif á uppeldisgildi þessara bók- mennta. Annar sjálfsævisöguritari, Sæmundur Dúa- son (f. 1889), hafði þetta að segja unt áhrif fornmenntanna á æsku sína: Það mætti vel vera, að allur þessi lestur og rímnakveðskapur hafi haft nokkur áhrif á skapgerð mína og viðhorf til líðandi stund- ar. Þetta var á þeim tímum, þegar fólk var ekki að rengja efni sagnanna, þó að stór- kostlegustu ýkjurnar væru ekki af öllum teknar alvarlega. Að minnsta kosti margt af því, sem ég las, var mér blákaldur veru- leiki.45 En Sæmundur lét ekki hér við sitja heldur gerði tilraun til að meta að hvaða leyti sög- urnar höfðu áhrif á hann og hvers konar fyr- irmyndir þær veittu: Nógu var úr að velja, ef maður hefði viljað reyna að semja sig að háttum ágætra manna. Að hinu leytinu var ekki heldur skortur eða hörgull á vondum dæmum til að varast.46 Og Sæmundur heldur áfram með frásögn sína: Þó að ég minnist þess ekki, að ég reyndi blátt áfram að apa eftir söguhetjunum, þá er hitt víst, að ég dáði þær söguhetjur, sem mestan sýndu manndóm í hvívetna. Að sama skapi hafði ég andúð á hinurn, sem mest voru löðurmenni, mönnum sem aldrei mátti treysta og alltaf þurftu eitt- hvað illt að láta af sér leiða. Siðspeki sagn- anna var oftar en hitt afdráttarlaus. Þannig var því aftur á móti naumast alltaf farið um siðalærdóminn í kveri Helga Hálfdánar- sonar, sem börnum var gert að læra fyrir fermingu.47 Mynd 9. Ólafur pá, Gunnará Hlíðarenda, Gísli Súrsson, Hallur af Síðu, Bergþóra eða Guðrún Ósvífursdóttir: Hvert þeirra ætli hafi verið f mestu uppá- haldi hjá þessum ungmennum? 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.