Ný saga - 01.01.1997, Qupperneq 12
Jón Olafsson
Mynd 11.
Þóroddur
Guðmundsson.
r>
Mynd 12.
Eyjólfur Árnason.
Þóroddur og Eyjólfur fóru hvor í sína átt-
ina sumarið 1931. Þóroddur var sendur til
fiskimannaþorpsins Tsypnavolok, á Rybatsjí-
skaga í norðvesturhorni Rússlands, nálægt
finnsku og norsku landamærunum. Eyjólfur
var sendur til georgísku borgarinnar Batumi
við Svartahafið. Báðum var ætlað að starfa
með flokksdeildinni á staðnum auk þess að
vinna almenna vinnu. Eyjólfur starfaði í sjó-
mannaklúbbi bæjarins, þar sem töluverður
straumur var af útlendum sjómönnum. Þór-
oddur stundaði fiskveiðar með heimamönn-
um og aðstoðaði við „kollektívíseringu“ smá-
bátaútgerðarinnar í Tsypnavolok, ásamt
flokksdeildinni á staðnum og tveimur norsk-
um samstúdentum sínum, sem gengu undir
dulnefnunum Eng og Nielsen.38
Eyjólfur virðist einkum hafa velt því fyrir
sér um sumarið hvernig hægt væri að snúa
sjómönnum sem dvöldust um lengri eða
skemmri tíma í Batumi til kommúnisma.
Hann kvartaði yfir þvf í skýrslu um dvölina að
ekki hafi verið reynt að hafa ofan af fyrir
þeim með viðunandi hætti og iðulega hafi
menn leiðst út í drykkjuskap vegna tómra
leiðinda. Forstöðumann sjómannaheimilisins
taldi hann of fáfróðan og fullan af klisjum til
þess að nokkur gæti orðið fyrir áhrifum af
honum: „Stundum heldur hann langar ræður
sem ekki eru annað en merkingarlaust orða-
gjálfur, frasar og slagorð, niður með kapítal-
ismann og svo framvegis."39
Eyjólfur var ekki hrifinn af borginni. Hann
sagði vændi og brask blómstra í Batumi. Þar
að auki væri borgin full af mensévikum sem
hefðu þar einskonar miðstöð. En þótt staður-
inn væri langt í frá nægilega bolsévískur taldi
Eyjólfur sig samt hafa náð nokkrum árangri
við að uppfræða sjómennina um Sovétríkin
og kommúnismann. Svona lýsir hann vinnu
sinni:
Þegar sjómennirnir höfðu lokið störfum
sínum á kvöldin (einnig í hádegishléinu),
tókst mér oft að safna áhöfnunum saman
og koma af stað umræðum eða halda fyrir-
spurnafundi og þá oftast um Sovétríkin og
um ástandið meðal rússneskra sjómanna.
Einnig var stundum rætt um ástandið í
heimalöndum áhafnanna og ástandið í
heiminum almennt.4'1
Árið 1931 var gífurlegt umrót í Sovétríkj-
unum. Alls staðar var fólk á faraldsfæti. Bol-
sévikar höfðu endanlega snúið baki við NEP-
stefnunni og þar með var frjáls markaður úr
sögunni í Sovétríkjunum. Bændum, fiski-
mönnum, veiðimönnum og öðrum sem fram
að þessu höfðu að einhverju leyti að minnsta
kosti verið sjálfra sín herrar var nú gert að
ganga í samyrkjubú og samvinnufélög. Sjálfs-
eignarbændur voru sviptir löndum sínum,
margir drepnir, aðrir hraktir í útlegð. Á sama
tíma átti að iðnvæða Sovétríkin. Um allt land-
ið voru að hefjast gífurlegar framkvæmdir
sem kröfðust vinnuafls og leiddu til búferla-
flutninga fjölda fólks. Á þessum árum urðu
ótrúleg umskipti í lífi Sovétborgara, samfé-
laginu var umturnað. Milljónum saman yfir-
gaf fólk sveitirnar og þusti til borganna eða á
ný iðnaðarsvæði. Þó að fjöldi manns væri á
flótta og fangelsanir og aftökur yrðu sífellt
tíðari, þá fékk þorri fólks tækifæri sem ekki
höfðu boðist áður: starfsframi og menntun
var í boði fyrir þá sem höfðu heppnina með
sér og kunnu að grípa gæsina.
Þóroddur Guðmundsson lenti í þessari
hringiðu miðri. Fólkið í Tsypnavolok talaði
norsku en ekki rússnesku og mátti sannarlega
muna tímana tvenna. Flokksdeildin á staðn-
um var hins vegar skipuð Rússum sem beittu
heimamenn hinu mesta harðræði. Tsypnavo-
lok var fjölmennast nokkurra norskra fiski-
mannaþorpa á norðanverðum Kolaskaga.
Norðmenn höfðu byrjað að flytjast þangað
uppúr miðri 19. öld, en þá var Kolaskagi nán-
ast óbyggður. Fengsæl fiskimið voru við alla
ströndina. Til að byrja með nutu Norðmenn-
irnir sérréttinda. Það breyttist um 1910 þegar
stjórnvöld ákváðu að norsku innflytjendurnir
skyldu framvegis lúta sömu reglum og aðrir
þegnar Rússakeisara. Hagur þessa fólks
versnaði þó fyrst til muna við byltinguna. Þá
var landamærunum lokað og tengslin við
Noreg rofnuðu. Fram til 1931 voru fiskimenn-
irnir þó sjálfstæðir og gátu ráðstafað afla sín-
um að nokkru leyti sjálfir. En á útmánuðum
1931 komu fyrirmæli frá stjórnvöldum um
að nú skyldu fiskimennirnir í Tsypnavolok
stofna félagsútgerð. Þessi fyrirmæli fengu
dræmar undirtektir meðal heimamanna.41
Þegar Stein (dulnefni Þórodds), Eng og
10