Ný saga - 01.01.1997, Page 60

Ný saga - 01.01.1997, Page 60
Gunnar F. Guðmundsson Mynd 2. Bændur reiða fram tiund við kirkjuhöfðingja. er fyrningar af matvælum og heyjum að vori, þurfti ekki heldur að tíunda.7 Loks var tekið fram að goðorð væru ekki tíundarskyld, enda fólu þau í sér vald og mannaforráð fremur en áþreifanlega eign.8 í Grágás er ekki gert ráð fyrir að aðrir séu undanþegnir tíund en þeir sem áttu minna en 60 álnir (hálft kýrverð). Þó var þeim einnig hlíft, er höfðu ómaga á fram- færi sínu, ef fé þeirra var undir eignamörkum þingfararkaupsbænda.9 Áður en bændur og aðrir lögskilamenn héldu til samkomunnar hafa þeir flestir verið búnir að reikna út upphæð tíundar samkvæmt þeim leiðbeiningum sem gefnar voru í tíund- arlögunum. Viðmiðunarreglan var sú að sá sem átti 600 álnir vaðmáls skuldlausar (fimm kúgildi) skyldi gefa sex álnir (það er 1 %) í tí- und. Auk eiðtökunnar áttu hreppsmennirnir fimm að skipta tíund bænda í fjóra hluta, milli biskups, sóknarkirkju, presta og þurfamanna, og segja til um hver ætti að taka við hverjum þeirra. Tíund, sem var minni en sex álnir vað- máls, var þó ekki skipt heldur rann hún öll á einn stað, til fátækra. Flestum hlaut að vera kunnugt um hver væri viðtakandi kirkju- og preststíundar því að biskup hafði þegar ákveðið tíundarumdæmi hverrar kirkju og þess prests sem þar þjónaði. En um þurfa- mannatíundina gegndi öðru máli. Hún fór ýmist beint til fátækra, sem reyndu að hokra að búi sínu, eða var greidd til bænda, sem höfðu hreppsómaga tímabundið á framfærslu sinni. Hreppsmennirnir fimm áttu sérhvert haust að jafna tíundinni réttvíslega niður á þurfamenn og húsbændur þeirra.10 í kristinna laga þætti Grágásar var ákvæði um að biskup skyldi segja að kirkjusóknum hver ætti að taka við fjórðungi hans.11 Fljót- lega mun hafa komist á sú venja að kirkju- bóndi eða sóknarprestur tæki við biskupstí- und ásamt kirkju- og preststíund. í skipan frá Árna biskupi Porlákssyni (1269-98) var mælt svo fyrir að hver prestur skyldi hafa vitneskju um upphæð biskupstíundar og halda henni aðgreindri frá kirkjutíundinni. Jafnframt átti prestur að fylgjast með því frá ári til árs hversu mikið var greitt í biskupstíund hverju sinni í þingunum (prestaköllum) og láta bisk- up vita þegar hann ætti þar leið um.12 í ann- arri skipan, frá 1396, kemur fram að kirkju- bóndi og prestur áttu síðan að afhenda pró- fasti tíundina eða öðrum þeim sem til þess var skipaður í umboði biskups.13 Með þessu ná- kvæma eftirlitskerfi gat biskup bæði haft góða yfirsýn um tíundartekjur sínar og um leið gengið úr skugga um hvort hann hefði fengið þær að fullu greiddar. Hver skattskyldur hreppsbúi bar ábyrgð á því að tíund hans kæmist til skila. Hann vissi einnig að gjaldmiðill tíundar var mismunandi eftir þörfum viðtakanda: Tíund þurfamanna átti að vera í vaðmálum eða vararfeldum, ull eða gærum, mat eða kvikfé, öðru en hrossum. Biskup skyldi fá vaðmál eða vararfeldi, lamb- gærur, gull eða brennt silfur. Prestum var ætl- uð sams konar greiðsla og biskupi, en til kirkjuþurfta skyldi gjalda í vaxi eða viði, í reykelsi, tjöru eða nýjum léreftum. Heimilt var þó að greiða kirkjutíund einvörðungu í vaðmálum. Með vaxandi sjávarútvegi á 14. öld varð fiskur löglegur gjaldmiðill og þeim mun eftirsóttari sem hann hækkaði í verði í hlutfalli við landbúnaðarvörur. í Vestmanna- eyjum komst á sú regla þegar á síðasta fjórð- ungi 13. aldar að greiða tíunda hvern fisk í prests- og kirkjutíund. Pað mun líklega hafa gerst að norskri fyrirmynd því að um líkt leyti (31. júlí 1280) gaf Árni biskup Porláksson klaustri heilags Mikjáls í Björgvin eyjarnar.14 Fljótlega eftir að haustsamkomunni lauk fóru bændur eða vinnumenn þeirra af stað með þurfamannatíundina og komu henni til 58
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.