Ný saga - 01.01.1997, Page 68
Sigríður Matthíasdóttir
Mynd 3. Tomas
Garrigue Masaryk
(1850-1937), fyrsti
forseti lýðveldisins
Tékkóslóvakfu. Hann
vildi sannfæra þjóð
sína um að hún
stæði vestrænum
lýöræðisþjóöum
hvergi að baki.
© e f d) i á> 11
0 ö t) nt e n.
Urtunttn unt fcaní iáriftrn.
»>«■) D a i « r f n.
X« Urgi(«u»n ■« »n 3«« trr ft.rjíjr m ícfmtu
V t . *.
3* «—'!«•• kr. ■«• U.t.r
1»3«.
Mynd 4. Titilsíða
frumútgáfu bókar
Palackýs, Geschichte
von Böhmen, sem
kom út í Prag 1836.
'S?
V
Mynd 5.
Frantisek Palacký,
þekktasti sagnaritari
Tékka á 19. öld.
Tomas Masaryk sótti
hugmyndir sínar að
miklu leyti til hans.
heimspekingurinn Tomas Masaryk (1850-
1937).6 Masaryk var einn helsti baráttumað-
urinn fyrir stofnun ríkisins Tékkóslóvakíu
árið 1918 og síðan forseti landsins til 1935. í
ritum sínum vísaði Masaryk ævinlega til gull-
aldar hinnar tékknesku þjóðar, rétt eins og
þjóðernissinnaðir menntamenn íslenskir, en
hugmyndin um gullöld er alþekkt fyrirbæri í
þjóðernisgoðsögnum. í þjóðernishugmynd-
um Tékka er litið á tímabil hinna svokölluðu
húsíta sem gullöld tékkneskrar þjóðar en
þeir eru kenndir við siðskiptafrömuðinn Jan
Hus sem barðist fyrir endurbótum á kaþólsku
kirkjunni en var brenndur á báli fyrir það árið
1415.7
í þjóðernispólitískum skrifum sínum leit-
aðist Tomas Masaryk stöðugt við að sýna
fram á hvernig Tékkar hefðu á tíma húsít-
anna ekki einungis staðið öðrum þjóðum
framar í trúarlegum efnum. f>eir hefðu ekki
síður verið persónugervingar hugmynda á
borð við frelsi mannsins, jafnrétti allra manna
og bræðralag eða með öðrum orðum, frum-
herjar á sviði þeirra hugmynda sem einkenna
stjórnarfyrirkomulag Vesturlanda nútímans.
Að áliti Masaryks voru Tékkar frumkvöðlar á
þessu sviði allt til ársins 1620 er þeir biðu
lægri hlut í hinni svokölluðu orustu við Hvíta-
fjall.8 Þá biðu tékkneskir aðalsmenn ósigur
fyrir Habsborgurum og hefur árið 1620 svip-
aða stöðu í þjóðernisgoðsögn Tékka og árið
1262 í íslenskri þjóðernisgoðsögn. f»að mark-
ar endalok gullaldarinnar og upphaf hnignun-
artímabilsins sem fylgdi erlendum yfirráðum.9
Skrif Masaryks eru þannig mjög gott dæmi
um hvernig þjóðernisgoðsagnir voru skapað-
ar og hvernig unnið var að því að móta sjálfs-
mynd hinna smærri Evrópuþjóða á borð við
Tékka og íslendinga sem vildu stofna lýðræð-
isleg þjóðríki en skorti að mörgu leyti þær
hefðir og þá sögulegu þróun sem slíkt stjórn-
arfyrirkomulag var sprottið af. Þessi skrif
sýna vel aðferð menntamanns sem vildi að
þjóð hans tæki upp nútímalega stjórnarhætti
og stofnaði nútíma þjóðríki en fann um leið
fyrir vanmætti hennar gagnvart þeirri hug-
myndafræði og þeim þjóðfélagsaðstæðum
sem þetta tvennt varð til úr. Masaryk er í raun
að segja þetta: f*að getur vel verið að það sé
útbreidd skoðun að hugmyndir um frelsi ein-
staklingsins eða jafnrétti allra manna hafi
fyrst orðið til í Englandi eða í Frakklandi með
frönsku byltingunni en það byggist á van-
þekkingu og misskilningi. Þessar hugmyndir
eiga í raun uppruna sinn hér hjá okkur og
ekki nóg með það, þær eru óafmáanlegur
þáttur í tékkneskri þjóðarsál. Það sem sögu-
lega hefur komið í veg fyrir að lýðræði Tékka
frá því á miðöldum fengi að þróast hafa verið
erlend yfirráð, þ.e. drottnun þýskrar yfirstétt-
ar. Með þessu vildi Masaryk að sjálfsögðu
sýna fram á að Tékkar ættu óumdeilanlegan
rétt á að teljast til nútíma lýðræðisþjóða um
leið og hann vildi sannfæra þjóð sína um að
hún stæði þessum sömu lýðræðisþjóðum
hvergi að baki, þvert á móti væri hún þeim í
raun miklu fremri.10
íslenskir menntamenn brugðust á margan
hátt líkt við nútímanum og Tomas Masaryk.
Aðferð þeirra við að gera nútímaþjóð úr ís-
lendingum, byggja upp íslenska sjálfsmynd og
um leið að sýna fram á nauðsynina á frelsi og
sjálfstæði íslensku þjóðarinnar svipar til þeirr-
ar leiðar sem Masaryk fór í sínum ritum. Hug-
myndafræðingum íslenskrar þjóðernishyggju
66