Ritmennt - 01.01.2005, Side 41

Ritmennt - 01.01.2005, Side 41
RITMENNT HIMNABRÉF ÖMMU MINNAR vaxin svo úr grasi, að sum þeirra voru farin að heiman. Hið yngsta var 12 ára. Ormur afi hafði lengi sótt róðra á vorin út í Mýrdal. Þar reri hann með manni einum, sem Klemens Klemensson hét og var lengst af vinnumaður og lausamaður á ýmsum bæjum í Reynishverfi og eitt ár bóndi í Reynisholti. Tókst mikil vinátta með þeim félögum. Vafalaust hafa landþrengslin í Efri- Ey borizt í tal milli þeirra vinanna. Klemens mun hafa verið sæmilega efnurn búinn á þeirrar tíðar mælikvarða og átti meðal ann- ars jörðina Kaldrananes. Þar sem hún var laus til ábúðar um þessar mundir, vildi hann, að afi settist þar að og keypti hana. Eftir nokkra umhugsun og samráð við fjöl- skyldu sína varð það úr, að hann tók þessu boði. Vissulega hefur hér orðið mikil breyting fyrir Efri-Eyjar fólkið að taka sig upp með alla sína búslóð og setjast að í lítt kunnu umhverfi. Af sjálfu sér leiddi, að þessir Meðallendingar fluttu sínar siðvenjur með sér að austan um búskaparhætti og annað. Eitt var það, að halda hvíldardaginn heil- agan og ganga hvorki til heyverka né ann- arra verka en nauðsyn bar til þann dag. Ég heyrði móðurfólk mitt á Giljum, sem er jörð nokkru austar en Kaldrananesið, einmitt tala um þetta, enda mun þetta háttalag hinna nýju ábúenda á Kaldrananesi hafa vakið athygli Mýrdælinga almennt. Var slíkt að vonum, enda þeir flestir vanir að nota hverja uppstyttu, hvort sem var um helgar eða rúmhelga daga, til að hjarga heyfeng sínum. Sjálfur veit ég mætavel frá veru minni í Mýrdalnum á unglingsárum mínum, að þess gerðist oft þörf, ekki sízt eftir langvarandi votviðri, að ég tali ekki um, ef góður þurrkur kom eftir mikinn rosa. Þá vildi einmitt oft svo til, að hann kom um helgar. Þetta notfærðu amma og afi sér ekki. Þau héldu sinni venju úr Meðallandi. Hygg ég, að svo hafi verið alla búskapartíð þeirra þar, og það hélzt jafn- vel eitthvað áfram hjá börnum þeirra, sem tóku við jörðinni, þegar þau hættu búskap árið 1921. í þessu sambandi verð ég að geta einnar sögu um afa minn, er hann hafði setzt að á Kaldrananesi. Sú saga mun hafa orðið eitthvað lcunn í Mýrdalnum á sínum tíma og meðal annars hjá móðurfólki mínu á Giljum. Þar heyrði ég hana líka fyrst. Hún rifjast nú aftur upp fyrir mér, þegar ég hef verið að hugleiða Hb hennar ömmu minnar. Þegar grannt er skoðað, má ef til vill rekja beint samband milli þeirrar sögu og boð- skapar Hb um vinnu á sunnudögum. Um það leyti, sem afi og amma sett- ust að á Kaldrananesi, var komin nokkur byggð þurrabúðarmanna í Vílc í kringum þá verzlun, sem þar var að myndast. íbúarnir höfðu nokkurn búskap og fengu sér slægjur á ýmsum stöðum úti í sveitinni. Eins munu einhverjir bændur hafa tekið fé af þeim til fóðurs að vetri til. Einn þessara manna leit- aði til afa míns í þessu skyni. Ekki veit ég, hvernig það atvikaðist í upphafi. Eitt sumar eftir mikla óþurrka stytti loks upp og gerði brakandi þurrk um helgi. Notfærðu Mýrdælingar sér að venju þurrk- inn nema Meðallendingarnir á Kaldrananesi. Þennan sunnudag reið Víkurbúinn, sem afi tók kindurnar af, út í Mýrdal. Þegar hann kom aftur til Víkur, var hann spurður, hvort menn hefðu ekki allir verið í heyskap úti í sveitinni. Því svaraði hann játandi, en 37
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Ritmennt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritmennt
https://timarit.is/publication/859

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.