Ritmennt - 01.01.2005, Side 112
BIRGIR ÞÓRÐARSON
RITMENNT
á Hálsi 1739-95. Meðal barna þeirra var
Þórunn er giftist séra Gunnari Hallgrímssyni
í Laufási. Þau voru foreldrar séra Gunnars,
föður Tryggva og Eggerts og þeirra syst-
kina.
8. Á Hólum þegar Sigurður sat
og sæmdar kvinnan hans mæta,
buðu þau mér að borða mat,
blessaða fæðu sæta.
Saltfisk, súrt smjör og ost;
svoddan hafði eg þar kost,
út valið ættingsskyr,44
aldrei sá ég slíkt fyrr.
Glöggt mátti eg að mér gæta.
Sigurður Tómasson (1691-1769), bjó á
Hólum í Eyjafirði 1751-60, sonur Tómasar
Snjólfssonar og Hallfríðar Grímsdóttur,
sem bjuggu á Hjálmsstöðum og í Teigi.
Sigurður var kvæntur Margréti Steinsdóttur,
Olafssonar og Kristínar Sveinsdóttur í
Bölverksgerði. Sigurður bjó á Jökli 1760-69
og er löngum kenndur við þann bæ.
9. Ljósavatni þá lagði eg að,
lítinn með farar beina,
María gladdist mjög við það,
mitt nam svo heiti greina.
Hún bauð mér í bæinn inn;
batnaði hagur minn;
fékk mér til fæðu strax,
fisk, smjör og steiktan lax.
Viku áði eg þar eina.
Þarna mun vera átt við Maríu Sörinsdóttur,
móður hinna lcunnu Ljósavatnssystkina,
Júditar, Rutar, Bóasar og Jónatans, Sigurðar-
barna. Hún bjó á Ljósavatni, ásamt manni
sínum Sigurði Oddssyni silfursmið, upp úr
miðri átjándu öld, en þau fluttust síðar í
Þórustaði í Kaupangssveit í Eyjafirði.
11. í Múla bar eg mykju úr haug;
mestan þar dugnað sýndi.
Þá var mér næsta þörf á laug;
þegjandi prestur gríndi.
Sunnan Sigurður minn
sagði mig velkominn.
Við Þorvald mér þótti ver,
þá hann fór undan mér.
Tóbaks eg horni týndi.
Prestur í Múla 1749-76 var Jón Þorleifsson
(um 1712-76), Skaftasonar og fyrri konu
hans Ingibjargar Jónsdóttur. Kona séra Jóns
var Kristín Konráðsdóttir frá Bæ á Höfða-
strönd. Þau voru barnlaus.
Og áfram heldur Gunnvör. Hún nefn-
ir prestinn í Kelduhverfi sem þá var séra
Sigurður Benediktsson (1702-81). Hann var
prestur í Garði 1733-74. Foreldrar hans voru
Benedikt Þórðarson á Laxamýri og kona hans
Steinunn Sigurðardóttir, lögréttumanns á
Svalbarði, Jónssonar, en kona Þórdís Guð-
mundsdóttir, prests á Þönglabakka, Þorláks-
sonar. Börn þeirra sem upp komust voru séra
Jón í Garði og Guðrún, síðari kona Björns
sýslumanns Tómassonar í Þingeyjarþingi.
Eftir að hér er lcomið verður erfiðara að
bera lcennsl á þá sem nefndir eru í vísunum,
svo sem Sigurð í Múla, Þorvald á Laugum,
Ara á Skinnalóni, Lauga sem líklega var
blóðtökumaður í Öxarfirði eða Kelduhverfi,
Illuga, Gróu í Garði, Simba í Saltvík, Jósep á
Mýri, Guðrúnu á Balcka og ýmsa fleiri.
Nokkru síðar segir Gunnvör deili á sér:
17. Ogift persóna er eg enn;
ýmsir mín forðum báðu.
44 Ættingsskyr: líklega skyr úr áttungi, það er skyr-
kút.
108