Ritmennt - 01.01.2005, Síða 116
Benedikt S. Benedikz
RITMENNT 10 (2005) 112-23
Frá leyndarárum
leyndarslcjalavarðarins
Benedilctssafn opnar smágátt
Fyrir nokkrum árum flutti Harald Jörgen-
sen leyndarskjalavörður merldlegan og
fróðlegan fyrirlestur í Reykjavík um hina
tvo íslensku forvera sína í embætti, þá
Grím Thorkelin og Finn Magnússon, og
skýrði þar vandlega frá embættisverkum
þeirra og vinnuháttum.1 En hinum ágæta
fyrirlesara sást þó yfir að leita að skjölum í
íslenskum söfnum sem gætu komið honum
til hjálpar, og er að því skemmtan að geta
bætt dálitlu í belg.
Um haustið 1938 barst dr. Benedikt
Þórarinssyni sú fregn að Ellis, fornbóka-
sali í Great Bedwyn, Wiltshire á Englandi,
hefði til sölu handrit sem snertu Islending.
Benedikt brást við snarlega eins og hans var
von og vísa, og keypti safn níu bréfa, sem
reyndust vera frá Grími Thorkelin, lagði út
3 pund og 15 skildinga í gamalli mynt, og
fékk heimt safnið í sltrifborðsskúffu sína
fyrir jólin.
Því miður gafst Benedikt ekki tími til
að átta sig á því hverslags feng hann hafði
náð í, því að síðustu árin hafði hann í
mörg horn að líta, og þess vegna lágu þau
þar óhreyfð þegar hann féklt slag það sem
gerði hann rúmlægan vorið 1940. Þegar
hann lést síðan 29. ágúst á því ári varð uppi
fótur og fit við að pakka niður bókum hans
og blöðum og koma þeim á hið nýstofn-
aða Háskólabókasafn. Þar var sannarlega
ekki um mikið starfslið að ræða þá dagana.
Þeir dr. Einar Ol. Sveinsson og dr. Björn
Sigfússon voru í mörg ár einir síns liðs við
allar safnsatgerðir, og því voru lausablöð
og handrit sem ekki voru innbundin í bók-
arformi skiljanlega látin sæta afgangi. Þegar
svo Benediktssafn flutti í sitt forláta nýja
húsnæði í Þjóðarbókhlöðu vorri komst samt
skriður á hirðing þeirra, og það vildi svo til
að drengurinn litli, sem horft hafði stórum
augum á afa sinn er hann opnaði póstinn frá
1 Harald Jörgensen: Tveir íslenskir leyndarskjala-
verðir: Grímur Thorkelin og Finnur Magnússon.
Skírnit 160 (1986), bls. 101-22.
112
1