Vera - 01.02.2002, Page 10
IÐNO
Voriö 2000 keypti Margrét Rósa Einarsdóttir
rekstur veitingahússins Iðnó sem stofnað var eftir að gagn-
gerar endurbætur höfðu verið gerðar á fallega, gamla leik-
húsinu við Tjörnina fyrir nokkrum árum. Veitingahúsið er á
efri hæð hússins og niðri er kaffihús sem opið er á sumrin
þegar einnig er hægt að sitja úti. Ekki virðist öllum Ijóst að
veitingahúsið er óháð rekstri leikhússins sem rekið hefur
verið í húsinu og þar er hægt að kaupa mat af matseðli á
kvöldin. Ef fólk langar út að borða er varla völ á fallegra
umhverfi en í þessu gamla húsi sem angar af sögu. Utsýn-
ið yfir Tjörnina er einstakt og fyrir eða eftir matinn er hægt
að fara upp í ris þar sem er notalegur bar og koníaksstofur.
Margrét Rósa hefur tekið þátt í veitingahúsarekstri í miðbæ Reykja-
víkur frá því hann endurlífgaöist í byrjun níunda áratugarins. Hún
vann í þrjú ár sem þjónn á fínu hóteli í skíðabænum Geilo í Noregi
en þangað kom norski krónprinsinn gjarnan og þar lærði hún marg-
ar gagnlegar reglur. Þegar heim kom, 1982, lærði hún til þjóns á
veitingahúsinu Lækjarbrekku og vann þar í 11 ár, síðustu árin sem
yfirþjónn. „Ég vann hjá Kolbrúnu, stofnanda Lækjarbrekku, nánast
frá því hún opnaði og hætti jafnt og hún. Þetta var stórkostlegur
tími og Kolbrún brautryðjandi í rekstri veitinghúsa sem síðan urðu
svo vinsæl í miðbænum. Hún bakaði kökurnar sjálf og á þessum
tíma voru Litla Brekka og Kornhlaðan byggð. Eftir að við hættum á
Lækjarbrekku rákum við Kolbrún saman Piza í Austurstræti um
tíma. Ég tók mér síðan frí frá veitingarekstri og vann í Habitat sem
þá var við Laugaveg. En svo var ég beðin að sjá um rekstur Caruso
í Bankastræti og þar með lifnaöi veitingabakterían við. Ég eignað-
ist síðan hlut í rekstrinum, gerði upp sali á 2. og 3. hæðinni og þetta
gekk mjög vel. Eftir þrjú ár seldi ég Caruso og keypti lönó - veit-
ingahús."
Þegar Margrét er spurð um framtíð hússins segir hún: „Salur-
inn niðri er vinsæll fyrir veisluhöld en ég vona að takist að finna
framtíðarlausn á nýtingu hans. Mér finnst aö eigi að leigja hann til
alls kyns listastarfsemi, upplestra, leiksýninga o.s.frv. í apríl verður
hér t.d. dagskrá í tilefni af 100 ára afmæli Halldórs Laxness. Von-
andi verður hægt að endurvekja það fjölbreytta lif sem verið hefur
í Iðnó í meira en 100 ár. Ég gæti t.d. hugsað mér aö haldin yrðu böll
fyrir eldri borgara á sunnudagseftirmiðdögum eins og gert var I
gamla daga."
/ndir: Þórdí:
m
* C
, «